Meistaradeild Cintamani – Ráslisti í gæðingafimi
Keppni í gæðingafimi er að verða eitt af aðalsmerkjum Meistaradeildarinnar og leggja knapar mikinn metnað í það að koma fram með vel undirbúinn atriði, þar sem þjálfun og uppbygging þeirra skín í gegn á frábærum reiðskjótum.
Ráslistinn ber þess merki að allir áhugamenn um reiðmennsku, og hinn íslenska gæðing, ættu að geta séð eitthvað við sitt hæfi á fimmtudagskvöldið þegar keppni í gæðingafimi fer fram í TM Höllinni í Víðidalnum.
Árni Björn Pálsson sigraði síðast þegar keppt var í gæðingafimi á Flaumi frá Sólvangi, þeir félagar mæta aftur til leiks og hyggjast verja titil sinn. Julio Borba varð í öðru sæti árið 2018 á Glampa frá Ketilsstöðum, Bergur Jónsson mun sýna Glampa í ár og ætlar sér ekki að verða eftirbátur hins Portúgalska reiðmeistara. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir varð í þriðja sæti árið 2018 á Óskari frá Breiðstöðum, hún mætir á honum í ár og sýnir hann vafa lítið af sinni alkunnu mýkt og sanngirni.
Jakob Svavar, sem leiðir einstaklingskeppnina, mætir með Konsert frá Hofi sem er hestamönnum vel kunnugur. Flugnæmur og flinkur hestur sem gaman verður að sjá í keppni í gæðingafimi.
Þessi upptalning á knöpum og hrossum hefur þó að öllum líkindum lítið með það að gera hver stendur efstur á palli að lokinni keppni. Ráslistinn er hér fyrir neðan og eitt er ljóst, að allir geta sigrað.
1.Jóhanna Margrét Snorradóttir Kári frá Ásbrú
2.Árni Björn Pálsson Flaumur frá Sólvangi
3.Hanne Smidesang Roði frá Hala
4.Teitur Árnason Brúney frá Grafarkoti
5.Ólafur Andri Guðmundsson Gerpla frá Feti
6.Hanna Rún Ingibergsdóttir Grímur frá Skógarási
7.Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ
8.Jakob Svavar Sigurðsson Konsert frá Hofi
9.Hinrik Bragason Prins frá Hellu
10.Þórdís Erla Gunnarsdóttir Sproti frá Enni
11.Eyrún Ýr Pálsdóttir Kjarval frá Blönduósi
12.Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum
13. Hulda Gústafsdóttir Draupnir frá Brautarholti
14.Þórarinn Ragnarsson Leikur frá Vesturkoti
15.Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði
16.Bergur Jónsson Glampi frá Ketilsstöðum
17.Sigurbjörn Bárðarson Nagli frá Flagbjarnarholti
18. Viðar Ingólfsson Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu II
19. Guðmundur Björgvinsson Herkúles frá Ragnheiðarstöðum
20. Olil Amble Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum
21.Arnar Bjarki Sigurðarson Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum
22.Helga Una Björnsdóttir Þoka frá Hamrsey
23. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH