Síðasti skráningardagur

  • 23. júní 2019
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Íslandsmótið hefst 2.júlí

Við minnum á að skráningafrestur á Íslandsmót í hestaíþróttum rennur út á miðnætti mánudaginn 24.júní. Skráning fer fram á www.sportfengur.com. Mótið hefst þriðjudaginn 2.júlí.  

 

Eftirfarandi greinar eru í boði: 

Meistaraflokkur: fjórgangur V1, fimmgangur F1, tölt T1, tölt T2, gæðingaskeið PP1, 250m skeið P1, 150m skeið P3 og 100m flugskeið P2 

Ungmennaflokkur: fjórgangur V1, fimmgangur F1, tölt T1, tölt T2, gæðingaskeið PP1, 100m flugskeið P2 og fimikeppni A2 

Unglingaflokkur: fjórgangur V1, fimmgangur F2, tölt T1, tölt T4, gæðingaskeið PP1, 100m flugskeið P2 og fimikeppni A 

Barnaflokkur: fjórgangur V2, tölt T3, tölt T4 og fimikeppni A 

 

Skráningargjald er: 

– 5500 kr. fyrir barna- og unglingaflokk 

– 6500 kr. fyrir ungmennaflokk

– 7900kr. fyrir fullorðinsflokk

– 5500 kr. fyrir skeiðgreinar

 

Vakin er athygli á því að í fullorðinsflokki eru einkunnalágmörk í allar greinar. Það er parið, hesturinn og knapinn, sem þurfa að ná lágmörkum. Nánari upplýsingar hér: https://www.lhhestar.is/is/frettir/lagmork-a-islandsmot-2019

 

Nánari upplýsingar um mótið gefa: 

Einar Gíslason, framkvæmdastjóri – [email protected]

Þórdís Anna Gylfadóttir, mótstjóri – [email protected]

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link