Úrtaka í uppnámi
Gullmótið/Úrtaka í Fáki er í uppnámi eftir að annar knapi var hætt kominn eftir að hafa fallið í beygju.
Þriðji knapin í fjórgangi ungmenna Birgitta Bjarnadóttir féll í beygju á hryssunni Bliku frá Hjallanesi en fyrr í morgun féll Máttur frá Leirubakka í annari beygju vallarins.
Nú er verið að boða knapa á krísufund en aðstæður eru klárlega stórhættulegar. Undir lausu lagi er glerharður flugháll völlur og hafa fleiri hestar en Máttur og Blika verið við það að fara á hausinn.