Stóðréttir
September er mánuður rétta. Listi yfir helstu stóðréttir landsins var birtur í Bændablaðinu en hér fyrir neðan er hægt að sjá listann. Fyrstu réttirnar voru í dag í Skarðarétt og Staðarrétt í Skagafirði.
Stóðréttir 2014:
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. – laugardaginn 13. sept.
Staðarrétt í Skagafirði. laugardaginn – 13. sept.
Skrapatungurétt í A.-Hún.- sunnudaginn 14. sept.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. – sunnudaginn 14. sept. um kl. 14.00.
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún.- laugardaginn 20. sept. um kl. 16.00.
Árhólarétt í Unadal, Skag.- föstudaginn 26. sept.
Unadalsrétt í Unadal við Hofsós, Skag.- föstudaginn 26. sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag.-laugardaginn 27. sept.
Deildardalsrétt í Deildardal, Skag.- laugardaginn 4. okt.
Flókadalsrétt, Fljótum, Skag.- laugardaginn 4. okt.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún.- laugardaginn 4. okt. um kl. 7.00.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún.- laugardaginn 4. okt. um kl. 10.00.
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf.- laugardaginn 4. okt. um kl. 14.00.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún.- Upplýsingar bárust ekki.
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit – Upplýsingar bárust ekki.
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V. – Hún. – Upplýsingar bárust ekki.
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún.- Upplýsingar bárust ekki.
Þverárrétt ytri, Eyjafjarðarsveit – Upplýsingar bárust ekki.