Kynbótasýningar

  • 27. júní 2013
  • Fréttir
Kynbótasýningar

„Nú hefur verið opnað fyrir skráningar á kynbótasýningar það sem eftir lifir sumars. Þar er um að ræða eftirtaldar sýningar og daga með fyrirvara um breytingar háð þátttöku:

Selfoss 22.7 – 26.7                        Síðasti skráningar og greiðsludagur 15. júlí.

Miðfossar 12.8 – 16.8                        Síðasti skráningar og greiðsludagur 6. ágúst.

Hvammstangi 12.8 – 16.8            Síðasti skráningar og greiðsludagur 6. ágúst.

Hella 12.8 – 23.8                        Síðasti skráningar og greiðsludagur 6. ágúst.

Skagafjörður 19.8 – 23.8            Síðasti skráningar og greiðsludagur 12. ágúst.

Dalvík 19.8 – 23.8                         Síðasti skráningar og greiðsludagur 12. ágúst.

Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“.

Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 13.500,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en kynbótasýningin hefst í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Allar nánari upplýsingar í síma Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða á heimasíðunni www.rml.is þar sem t.d. eru leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið [email protected].

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Úr stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir blóðsýni og hæklamynd í WorldFeng svo hægt sé að skrá þá á sýningu.“ segir í tilkynningu frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link