Álfsteinn vann A-flokk gæðinga
Nú er Fjórðungsmóti Austurlands á Fornustekkum lokið, en síðast á dagskrá var A-flokkur eins og vant er á Stórmótum.
Það var Álfsteinn frá Hvolsvelli sem sigraði A-flokkinn með 8,64 en mörg snildartilþrif sáust og var A-flokkurinn líkt og B-flokkurinn sterkur hér á FM2013. Knapinn á Álfsteini var Pernille Möller en hún hlaut jafnframt FT verðlaun mótsis, en þau eru veitt þeim knapa sem sýndi besta reiðmennsku á mótinu.
Almennt má segja að hestakostur mótsins hafi verið sterkur í öllum flokkum, skemmtileg ræktunarbú en gaman hefði verið ef fleiri kynbótahross hefðu séð sér fært að mæta.
Framkvæmd mótsins heppnaðist með prýði of veðrið hefur leikið við mótsgesti á þessum síðasta dagi mótsins.
Úrslitin í A-flokki er sem hér segir:
| A flokkur | ||||||
| A úrslit | ||||||
| Mót: | IS2013HOF112 – Fjórðungsmót á Austurlandi. | Dags.: | 23.6.2013 | |||
| Félag: | Hornfirðingur | |||||
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn | ||||
| 1 | Álfsteinn frá Hvolsvelli / Pernille Lyager Möller | 8,64 | ||||
| 2 | Ásgerður frá Horni I / Sigurður Óli Kristinsson | 8,60 | ||||
| 3 | Gnótt frá Ytri-Skógum / Hlynur Guðmundsson | 8,59 | ||||
| 4 | Sólfaxi frá Sámsstöðum / Höskuldur Jónsson | 8,57 | ||||
| 5 | Glæsir frá Lækjarbrekku 2 / Friðrik Reynisson | 8,42 | ||||
| 6 | Hljómur frá Horni I / Ómar Ingi Ómarsson | 8,41 | ||||
| 7 | Óðinn frá Ytri-Skógum / Kristín Lárusdóttir | 8,30 | ||||
| 8 | Brenna frá Efstu-Grund / Hulda Jónsdóttir | 7,50 | ||||