Skráningu lýkur í dag
Gæðingamót Geysis, börn, unglingar, ungmenni er opið gæðingamót sem verður haldið á Gaddstaðaflötum við Hellu sunnudaginn 16.júní 2013. Þetta mót tekur einn dag þannig að nú er um að gera að taka þátt og einnig skemmtileg upplifun að koma og horfa á ungukynslóðina keppa í stórkemmtilegri keppni eins og gæðingakeppnin er.
Skráning fer fram á heimasíðu félgasins hmfgeysir.is undir hnappnum skráningarkerfi. Skráningu lýkur í dag miðvikudag 12.júní kl 23:59. Skráningargjald er 2000 kr og greiðist um leið og skráð er. Ef vandamál koma upp með skráningu er hægt að hafa samband í síma 8637130 áður en skráningu lýkur.
Mætum sem flest til að horfa á flotta hesta og eiga saman skemmtilega samverustund 16.júní á Gaddstaðaflötum.