Gæðingamót Geysis A-og B-flokkur

  • 1. júní 2013
  • Fréttir
Gæðingamót Geysis A-og B-flokkur

„Verður haldið laugardaginn 8.júní 2013 á Gaddstaðaflötum við Hellu. Keppt verður í opnumflokki og áhugamannaflokki A- og B-flokki gæðinga. Hvetjum við félagsmenn Geysis ásamt alla aðra hestaáhugamenn að taka þátt og eiga saman góðan dag.

 
Skráning er hafin á heimasíðu félagsins hmfgeysir.is undir hnappnum skráningarkerfi og lýkur skráningu miðvikudaginn 5.júní kl 23:59.
Þeir sem ætla að keppa í áhugamannaflokki velja „annað-2flokkur“ fyrir A-flokk og „annað-annað“ fyrir B-flokk. Aðrir velja bara A-flokk eða B-flokk.
 
Skráningargjald er 3500 kr og greiðist um leið og skráð er, muna að senda kvittun ef menn greiða með millifærslu. Ef vandræði koma upp við skráningu er hægt að hringja í 8637130 áður en skráningu lýkur,“ segir í tilkynningu frá Nefndinni
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link