Allt gekk upp hjá Mætti

  • 12. júní 2013
  • Fréttir
Allt gekk upp hjá Mætti

Sigurður V Matthíasson og Máttur voru að ljúka keppni og hlutu 7,00 í einkunn og er annar á eftir Sigursteini Sumarliðasyni á Skugga en þeir hlutu 7,20 í einkunn.

Gott er að sjá að þeir félagar eru í topplagi þrátt fyrir byltu gærdagsins. Í samtali við Eiðfaxa segir Sigurður Mátt hafa verið aðeins ragann í byrjun og ekki beitt sér á skeiðinnu eins á hann gerir best, en er samt mjög sáttur við árangurinn. Sigurður segist sjálfur vera aðeins lemstraður eftir fallið og sé með tak í öxlum og baki en muni berjast áfram.

Hestar eru talsvert betri í dag og allt annar og betri bragur fyrir mönnum og hrossum í blíðunni hér í Víðidal.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link