Gæðingakeppni Léttis – úrslit
„Frábærri gæðingakeppni er lokið á Hlíðarholtsvelli á Akureyri. Keppnin fór fram í fallegu en örlítið köldu veðri.
Mótið gekk vel og voru úrslitin æsispennandi þar sem mjótt var á munum í efstu sætum.
Sólfaxi frá Sámsstöðum og Höskuldur Jónsson sigruðu A-flokkinn en fast á hæla þeirra voru þau Binný frá Björgum og Viðar Bragason.
Í B-flokki sigraði Ás frá Skriðulandi og var það álit manna að þetta hafi verið ein sterkustu B flokks úrslit í langan tíma.
Björgvin Helgason bar sigur úr býtum í ungmennaflokki á glæsihryssunni Perlu frá Björgum.
Sylvía Sól Guðmundsdóttir sigraði unglingaflokkinn á Skorra frá Skriðulandi og hlut einnig Álfsbikarinn sem gefinn er af Guðrúnu Thoroddsen og Páli Alfreðssyni og fer til glæilegasta parsins í unglingaflokki og er það valið af dómurum mótsins.
Egill Már Þórsson fékk Djáknabikarinn en hann er veittur því barni eða unglingi sem efstur er i forkeppni. Bikarinn er gefinn af Magnúsi Árnasyni og sonum hans í minningu um Djákna á Dalvík sem þeir kepptu allir á. Egill Már hlaut 8,47 í forkeppninni.
Myndir munu koma inná facebook síðu Léttis á næstu dögum.“ segir í tilkynningu frá Létti.
Hér fyrir neðan eru allar einkunnir mótsins
Úrslit