Ágústínus og Kiljan á Ræktun 2011

  • 22. apríl 2011
  • Fréttir
Ágústínus og Kiljan á Ræktun 2011

Fjölbreyttir ræktunarhópar og miklir hæfileikahestar munu koma fram á stórsýningunni Ræktun 2011 í Ölfushöllinni á morgun, laugardagskvöldið 23. apríl að er fram kemur í fréttatilkynningum frá aðstandendum sýningarinnar.

„Fram koma fjölbreyttir ræktunarhópar, hryssur, stóðhestar og afkvæmi. Nú hefur verið staðfest að stórstjörnurnar Ágústínus frá Melaleiti og Kiljan frá Steinnesi munu mæta á svæðið, en að sögn þeirra sem séð hafa til eru þeir ævintýralega góðir þessa dagana og verður spennandi að sjá þá kappa þeysa um gólfið.

Ágústínus er undan Kolfinni frá Kjarnholtum og Gnótt frá Steinmóðabæ og hefur hæst hlotið í aðaleinkunn 8.61, þar af hvorki meira né minna en 8.93 fyrir hæfileika!

Kiljan er undan Kletti frá Hvammi og Kylju frá Steinnesi og hefur hæst hlotið 8.71 í dómi, þar af 8.96 fyrir hæfileika!

Sannkallaðir sprengjuhestar sem báðir hafa hlotið 9.5 og 9.0 fyrir fjölda atriða í dómi.

Sýningin hefst kl. 20 og fer miðasala fram við innganginn. Miðaverð er kr. 2.500, frítt inn fyrir 16 ára og yngri.

Tilvalið að taka páskabíltúr í Ölfushöllina og sjá ungar og eldri kynbótabombur leika listir sínar. Allir velkomnir!“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link