Að lokinni úrtöku fyrir HM
Úrtöku fyrir HM í Berlín og Gullmóti er lokið með þökk frá Landsliðsnefnd LH til framkvæmdaaðila fyrir glæsilegt mót og góða framkvæmd. Allir ánægðir eins og vera ber. En var framkvæmdin svona góð?
Vallaraðstæður voru rómaðar í frétt í upphafi móts. Lýsing á vellinum upp úr hádegi var líkari því sem listhlauparar á skautum hafa um sinn keppnisvöll. Mótshaldarar sögðu svo skömmu síðar að þeir hefðu haft efasemdir um að völlurinn væri keppnishæfur helgina á undan. Stórvirkar vinnuvélar voru fengnar til að endurvinna völlinn fyrir næsta dag. Þetta væri ekkert mál og völlurinn yrði prýðilegur að morgni. Verkefni sem venjulega telst viðamikið. Um morguninn var mótinu frestað um 2 tíma meðan völlurinn væri að þorna. Eftir þessa tvo tíma var keppnin flutt á annan völl. Þetta bendir til Reykhásheilkennis.
Breyting á keppnisreglum. Eftir að tveir hesta höfðu hrasað(mig rámar í að hestar hafi hrasað á þessum velli áður) lýstu mótshaldarar yfir að:
- mótinu væri frestað,
- mótinu væri aflýst og nýtt sett á,
- árangur í loknum greinum yrði felldur niður,
- þrjár umferðir og knapar mættu velja hvort árangur úr loknum greinum héldi sér,
- dagskrá yrði breytt og þeir sem væru með kynbótasýningar á sama tíma yrðu bara að taka því, (éta það sem úti frýs)
- árangur úr loknum greinum gilti en þrjár umferðir yrðu í fimmgang en tvær í öðrum greinum. Tvær bestu giltu.
Ég er kannski að gleyma einhverju eða eitthvað fór fram hjá mér því allar þessar tilkynningar komu á nokkrum klukkustundum.
Það hlýtur að teljast rétt ákvörðun að stöðva mótið og skoða aðstæður þegar tveir hestar höfðu hrasað. Í stað þess að leita lausna virðast menn fara á taugum. Ákvörðun þar sem reglum um mat á árangri er breytt á sér enga stoð í reglum LH. Ég held það séu ekki fordæmi fyrir því að leikreglum sé breytt meðan keppni stendur yfir í neinni íþrótt. (Ég hef reyndar lesið um höfðingja einn í þróunarríki sem keppti í hestaíþróttum og breytti reglunum þegar keppni var lokið þannig að hann vann alltaf.) Það hlýtur að vera krafa að reglur sem búið er að setja áður en keppni hefst gildi. Rök fyrir sérreglum um fimmgang sem bornar hafa verið á borð eru m.a. að úrtakan sé ekki mót og Landsliðsnefnd LH geti tekið svona ákvarðanir og þurfi ekki að bera hana undir aðra. Þetta er broslegt. Fagmennska varðandi val á landsliðinu, en nefndin breyti reglum að eigin geðþótta.
Annað atriði sem setti blett á framkvæmdina er viðmót og svör forsvarsmanna mótsins gagnvart keppendum og öðrum sem létu sig málið varða. Takmörkuð kurteysi í samskiptum var í hávegum höfð og virtist viðhorfið vera að helsta vandamál við að halda mót séu keppendur.
Tvær reglur giltu þó hjá mótshöldurum og ekki var hvikað frá þeim:
- Ég hef alltaf rétt fyrir mér
- Ef ég hef rangt fyrir mér þá tekur regla 1 gildi.
Niðurstöður mótsins réðust sem betur fer ekki af þessum atriðum sem breyttu líklega engu varðandi niðurstöður eða val á liðinu. Samkvæmt mínum skilningi fór þó mótið ekki fram samkvæmt reglum LH og er því ekki löglegt, en það er ekki eina málið. Eftir standa einstaklingar sem eru sárir og ósáttir. Í stað þess að efla og styrkja hestamennskuna sitja eftir allmargir einstaklingar með hugsunina, mikið óskaplega er þetta leiðinlegt. Það var ekki markmiðið.
Allt of mörg mistök urðu við framkvæmdina og það er ekki rétt að afgreiða það með yfirlýsingu um glæsilegt mót og þakklæti til mótshaldara. Svona atriði þarf að ræða opinskátt, taka þau fyrir sem brugðust og tryggja leiðir til að þau endurtaki sig ekki. Ekki bara á fundi í Landsliðsnefnd.
Landsliðsnefnd LH vinnur mikið og gott starf. Vinna sem sjaldan er þökkuð fremur en annað félagsstarf. Öll höfum við sameiginlegu markmið sem er það að efla hestamennsku og hafa gaman af. Til að svo verði þarf að læra bæði af því sem vel er gert og því sem misferst. Aðstandendur mótsins þurfa að koma með tillögur um hvernig koma megi í veg fyrir endurtekningu.
Með sumarkveðju
Sigurður Guðni Sigurðsson
hestakall