Nýr formaður danska landssambandsins
Torben Haugaard.
Á fundi Danska landsambandsins íslenska hestsins þann 17. nóvember sl. var Torben Haugaard kjörinn nýr formaður félagsins. Torben var áður formaður ræktunarnefndar félagsins en ákvað að gefa kost á sér í formannssætið þegar fyrrverandi formaður, Torben Søndergaard, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá DI – danska landssambandinu.
Torben Haugaard hefur áður verið formaður ræktunarnefndar frá 2001-2003, og á árunum 2003 til 2009 hefur hann fengist við ýmis tilfallandi verkefni á vegum félagsins. Torben Haugaard heldur lítið hrossabú með 15 íslenska hesta í Helsinge á Norður-Sjálandi og starfar á sviði ráðgjafar. Hann hefur fyrr á ferli sínum starfaði sem forstjóri í lyfjaiðnaði og fleira. Torben Haugaard er 55 ára gamall og á tvö börn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH