Reiðnámskeið í anda Gait Academy
Stian Pedersen
Í mörg ár hafa þeir félagar, Stian Pedersen, Bent Rune Skulevold og Eyjólfi Þorsteinssyni, verið með námskeiðið Gait Academy, bæði í Noregi og Danmörku við frábæran orðstír. Nú loks verður námskeiðið haldið hér á Íslandi. Námskeiðið verður 11.-13. janúar n.k á Sörlastöðum í Hafnarfirði. Frábært þriggja daga helgarnámskeið fyrir alla sem vilja komast á næsta stig hestamennskunnar.
Byrjað verður á kynningu á Gait Academy , svo er bæði bókleg og verkleg kennsla.
Öflugt og krefjandi námskeið fyrir alla, hvar sem þeir eru staddir í hestamennskunni.
Fyrstir að skrá, fyrstir fá.
Nánari upplýsingar og skráning er á [email protected]
Vefsíða Gait Academy er gaitacademy.com.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá hestamannafélaginu Sörla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH