Hrossaræktin 2019 – Ráðstefna
Á ráðstefnunni verða kynntar breytingar á dómskala kynbótahrossa
Fundarsalurinn heitir Katla og er á 2. hæð. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.
Á dagskrá er umfjöllun um nýtt ræktunarmarkmið og helstu breytingar á dómskalanum, yfirferð yfir hrossaræktarárið og verðlaunaveitingar.
Dagskrá hrossaræktarráðstefnunnar er eftirfarandi:
Laugardagur 2. nóvember 2019
14:00 Setning – Sveinn Steinarsson formaður fagráðs og FHB
14:10 Hrossaræktarárið 2019 – Þorvaldur Kristjánsson
14:30 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2019
14:45 Verðlaunaveitingar:
-Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Alhliða hross (aldursleiðrétt)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Klárhross (aldursleiðrétt)
15:00 Þorvaldur Kristjánsson – Nýtt ræktunarmarkmið, kynntar verða breytingar á dómskala .
16:00 Viðurkenningar fyrir tilnefnd ræktunarbú ársins 2019
Fundarslit um 16:30
Allir velkomnir!