Vesturlandsdeildin

  • 31. október 2019
  • Fréttir

Vesturlandsdeildin - Lokamót.

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum auglýsir laus til umsóknar laus liðspláss í deildinni á komandi tímabili, veturinn 2020

Einnig viljum við biðja þau lið sem tryggðu sér þáttökurétt að staðfesta þáttöku. Ef knapar hafa áhuga á að vera með en eru ekki komnnir í lið þá endilega hafa samband við stjórn sem mun þá koma þeim í samband við lið sem vantar knapa.

Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni í hestaíþróttum sem fram fer í Faxaborg, Borgarnesi. 7 lið etja kappi sem saman standa af fjórum til fimm einstaklingum.

Hvert lið sendir þrjá keppendur til leiks í hverja grein og telja allir til stiga í liðakeppninni en 10 efstu hljóta stig í einstaklingskeppninni.

Liðin ráða því sjálf hvort þau tefla fram fjórum eða fimm liðsmönnum í deildinni.

Keppnisgreinar á komandi tímabili verða Eftirfarandi. Í stafrófsröð:

Fimmgangur

Fjórgangur

Flugskeið

Gæðingafimi

Slaktaumatölt

Tölt

Deildin er opin öllum til þátttöku óháð búsetu.

Umsóknir berist á netfangið [email protected] í síðasta lagi 15. Nóvember n.k.

Með umsókninni þurfa að fylgja upplýsinar um alla liðsmenn og tilnefna skal einn þeirra sem liðsstjóra.

Stjórn Vesturlandsdeildarinnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link