„Góð leið til þess að koma vel undirbúinn til leiks“
Með nýju fyrirkomulagi í afreksmálum LH hefur verið ákveðið að setja af stað verkefni fyrir unga og metnaðarfulla knapa, það kallast Hæfileikamótun LH. Verkefnið verður á ársgrundvelli og er fyrsta skref og undirbúningur fyrir U-21 árs landslið. Ný afreksstefna LH verður birt á heimasíðu sambandsins á næstunni.
Hæfileikamótun LH fer af stað 2020, þar munu koma saman til æfinga ungir og hæfileikaríkir knapar víðsvegar af landinu. Verkefnið samanstendur af 6 hópum sem verða staðsettir í hverjum landshluta fyrir sig. Fjöldi knapa í hóp er 8. Gjaldgengir í hópinn eru unglingar á aldrinum 14-17 ára (unglingaflokkur). Frábært tækifæri fyrir unga knapa til að undirbúa sig með markvissri kennslu til að takast á við verkefni bæði hérlendis og á erlendum vettvangi t.d. Norðurlandamóti. Sýnum karakter verkefnið verður haft til hliðsjónar við störf hópanna. Nálgast má lýsingu á verkefninu á þessari slóð: https://www.synumkarakter.is/
Markmið Hæfileikamótunar LH er að:
- Fjölga þeim ungu knöpum sem fylgst er með á landsvísu
 - Undirbúa unga knapa fyrir hefðbundin landsliðsverkefni
 - Að byggja upp til framtíðar knapa í fremstu röð
 - Kynna stefnu LH í afreksmálum fyrir félögum og vinna í samvinnu með þeim
 - Stuðla að uppbyggilegu afreksstarfi víðsvegar um landið.
 
Viðburðir
- Janúar – helgarnámskeið (laugard/sunnud-einstaklingskennsla með hesti 45min)
 - Mars – helgarnámskeið (laugard/sunnud-einstaklingskennsla með hesti 45min)
 - Apríl/maí – helgarnámskeið (laugard/sunnud-einstaklingskennsla með hesti 45min)
 - Maí – vinna vetrarins yfirfærð á keppnisvöll
 - Sept – allir hóparnir saman án hests – sýnikennslur, hópefli og fræðsla
 
Þjálfarar og staðsetningar
| Hópur 1 HöfuðborgÞjálfari Hanna Rún Ingibergsdóttir
 25-26.janúar Sprettur 21-22.mars Hörður 2-3.maí Sörli Maí ótímasett  | 
Hópur 2 HöfuðborgÞjálfari Gústaf Ásgeir Hinriksson
 11-12.janúar Fákur 29. feb-1.mars Máni 25-26.apríl Sprettur Maí ótímasett  | 
| Hópur 3 VesturlandÞjálfari Fanney Dögg Indriðadóttir
 25-26.janúar Borgfirðingur 14-15.mars Borgfirðingur 25-26.apríl Borgfirðingur Maí ótímasett  | 
Hópur 4 AusturlandÞjálfari Ásdís Helga Sigursteinsdóttir
 25-26.janúar Freyfaxi 14-15.mars Freyfaxi 25-26.apríl Freyfaxi Maí ótímasett  | 
| Hópur 5 NorðurlandÞjálfari Barbara Wenzl 
 18-19.janúar Léttir 7-8.mars Skagfirðingur 25-26.apríl Skagfirðingur Maí ótímasett  | 
Hópur 6 SuðurlandÞjálfari Sigvaldi Lárus Guðmundsson
 25-26.janúar Geysir 7-8.mars Geysir 2-3.maí Geysir Maí ótímasett  | 
Kostnaður knapa er 100.000kr fyrir árið. Við bendum á möguleika knapa til að leita fjárhagslegs stuðnings til síns félags, sveitarfélags, fyrirtækja og einstaklinga.
Í umsókn er hægt að senda tilvísun á myndband af knapa sem er á Worldfeng frá Landsmótum eða link af youtube.
Annars skal senda myndaband af knapa sýna gangtegundirnar (frjálst er að sýna fimiæfingar). Myndbönd skulu send á netfangið vilfridur@lhhestar.is
Umsóknarfrestur er til miðnættis þriðjudaginn 3. desember 2019. Hópar verða tilkynntir um miðjan desember.
Verkefnastjóri er Vilfríður F. Sæþórsdóttir. Upplýsingar er hægt að nálgast í gegnum netfangið vilfridur@lhhestar.is.
                 
            
                 
            
                            	
                                                Minningarorð um Ragnar Tómasson