Jakob Svavar og Lið Hjarðartúns í forystu!
Frá verðlaunaafhendingu í liðakeppni í fjórgangi Mynd: Gísli Guðjónsson
Á vef Meistaradeildarinnar birtist nú rétt í þessu staðan í einstaklings- og liðakeppni eftir þrjár fyrstu greinarnar. Nú er lokið keppni í fjórgangi, slaktaumatölti og Fimmgangi.
Jakob Svavar Sigurðsson sigraði í keppni í fjórgangi á Hálfmána frá Steinsholti, hann varð í fimmta sæti í slaktaumatölti á Vallarsól frá Völlum og sigraði svo keppni í fimmgangi í gærkvöldi á Skýr frá Skálakoti.
Hann hefur því með þessari frábæru byrjun hafið titilvörn sína í Meistaradeildini af glæsibrag en Jakob Svavar sigraði einstaklingskeppnina í fyrsta skipti á síðasta keppnistímabili og ætlar sér greinilega að halda því sæti. Þá fékk hann 55 stig í heildarkeppninni!
Nýstofnað Lið Hjarðartúns hefur komið eins og stormsveipur inn í deildina og er eins og Jakob með töluverða forystu í liðakeppninni. En í liðinu eru auk Jakobs, Þórarinn Ragnarsson, Elvar Þormarsson, Hans Þór Hilmarsson og Helga Una Björnsdóttir liðsstjóri,
Það eru þó ennþá næg stig eftir í pottinum þar sem eingöngu þremur keppnisgreinum af átta er lokið og því getur allt gerst.

Lið Hjarðartúns Mynd: Gunnar Freyr
Staðan í einstaklingskeppni
| Knapi | Stig |
| Jakob Svavar Sigurðsson | 30 |
| Árni Björn Pálsson | 14 |
| Viðar Ingólfsson | 13 |
| Teitur Árnason | 12 |
| Eyrún Ýr Pálsdóttir | 10 |
| Matthías Leó Matthíasson | 10 |
| Arnar Bjarki Sigurðsson | 10 |
| Elin Holst | 8 |
| Jóhanna Margrét Snorradóttir | 8 |
| Ásmundur Ernir Snorrason | 8 |
| Olil Amble | 8 |
| Hulda Gústafsdóttir | 7 |
| Hanna Rún Ingibergsdóttir | 7 |
| Elvar Þormarsson | 7 |
| Helga Una Björnsdóttir | 5.5 |
| Þórarinn Ragnarsson | 5 |
| Glódís Rún Sigurðardóttir | 4 |
| Ragnhildur Haraldsdóttir | 2.5 |
| Sigurður Sigurðarson | 1.5 |
| Flosi Ólafsson | 1.5 |
Staðan í liðakeppni
| Lið | Heildarstig | Fjórgangur | Slaktaumatölt | Fimmgangur |
| Hjarðartún | 160.5 | 46 | 49.5 | 65 |
| Hrímnir / Export hestar | 129 | 34.5 | 52 | 42.5 |
| Top Reiter | 124 | 35 | 50 | 39 |
| Gangmyllan | 114.5 | 39.5 | 36 | 39 |
| Hestvit / Árbakki | 109.5 | 41 | 41 | 27.5 |
| Eques / Kingsland | 95 | 46 | 19 | 30 |
| Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð | 86 | 20 | 30 | 36 |
| Ganghestar / Austurás | 85.5 | 38 | 22.5 | 25 |
Dagskrá
| 8. mars | Sunnudagur | 12:10 | Gæðingafimi | Samskipahöllin, Sprettur, Kópavogur |
| 14. mars | Laugardagur | 13:00 | Gæðingaskeið og 150m. skeið | |
| 26. mars | Fimmtudagur | 19:00 | Tölt T1 og flugskeið | Samskipahöllin, Sprettur, Kópavogur |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH