Þórdís Erla og Fengur fremst í flokki í Vesturlandsdeilldinni
Fyrsta keppniskvöldið í Vesturlandsdeildinni á þessu tímabili fór fram í Faxaborg í Borgarnesi í gærkvöldi. í deildinni keppa sex lið sem hvert hefur á að skipa fimm knöpum en þrír knapar taka þátt í hverri grein.
Því taka eingöngu 18 knapar hvert kvöld og gengur forkeppnin hratt og örugglega fyrir sig.
Forkeppnin var jöfn og spennandi en að henni lokinni leiddin Siguroddur Pétursson á Eyju frá Hrísdal með einkunnina 6,77. Það var þó stutt í þær Þórdísi Erlu Gunnarsdóttur á Feng frá Auðsholtahjáleigu og Randi Holaker á Þyt frá Skáney sem voru jfanar í 2-3 sæti með einkunnina 6,70.
Keppt er bæði í til a-úrslita og b-úrslita en eins og tíðkast nú í mörgum deildum að þá ríður sigurvegari b-úrslit ekki til a-úrslita. Flýtir þetta fyrir framkvæmd kvöldsins.
Sigurvegari b-úrslita var Sigurður Rúnar Pálsson á Bessa frá Húsavík með einkunnina 6,63. Þær Iðunn Svandóttir á Sigurrós frá Söðulsholti og Hrefna María Ómarsdóttir urðu jafnar í 7-8 sæti með einkunnina 6,47.
Það var hins vegar Þórdís Erla sem stóð uppi sem sigurvegari að loknum a-úrslitum með einkunnina 7,17 en þetta var þeirra fyrsta keppni í fjórgangi innandyra. Siguroddur Pétursson farð annar með 7,03 og í þriðja sæti Randi Holaker með 6,83 í einkunn. Jafnir í 4-5 sætinu urðu þeir Guðmar Þór Pétursson og Haukur Bjarnason.
Það voru stelpurnar í Slippfélaginu sem voru stigahæsta lið kvöldsins en úr því liði komust allir knapar í úrslit. Þær Þórdís Erla, Hrefna María og Iðunn Lilja.

Stelpurnar í Slippfélaginu hlutu liðaplattan í fjórgangi
A-úrslit
- Þórdís Erla & Fengur frá Auðsholtshjáleigu; 7,17
- Siguroddur Pétursson & Eyja frá Hrísdal; 7,03
- Randi Holaker & Þytur frá Skáney; 6,83
- Guðmar Þór Pétursson & Ástarpungur frá Staðarhúsum: 6,67
- Haukur Bjarnason & Ísar frá Skáney; 6,67
B-úrslit
- Sigurður R. Pálsson & Bessi frá Húsavík; 6,63
- Hrefna María Ómarsdóttir & Eva frá Álfhóllum; 6,47
- Iðunn Lilja Svansdóttir & Sigurrós frá Söðulsholti; 6,47
- Leifur George Gunnarsson & Sveðja frá Skipaskaga; 6,40
- Linda Rún Pétursdótttir & Baltasar frá Korpu; 6,30
- Berglind Ragnarsdóttir & Smyrill frá Vorsabæ II; 6,30
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Hafnarfjarðarmeistaramótið í beinni í dag