Mette Mannseth og Skálmöld frá Þúfum unnu aftur!
Mette og Skálmöld Ljósmynd: Bjarney Anna Þórsdóttir
Í kvöld fór fram í Léttishöllinni á Akureyri þriðja keppniskvöldið í Meistaradeild KS þetta tímabilið þegar keppt var í fjórgangi.
Fyrir kvöldið var Mette Mannseth í forystu í einstaklingskeppninni og lið Þúfna í efsta sæti í liðakeppninni. Mette sigraði þessa grein í fyrra á Skálmöld frá Þúfum og voru þær stöllur skráðar til leiks í kvöld. Þær léku sama leik og í fyrra og stóðu uppi sem sigurvegarar nú með einkunnina 7,67 í úrslitum. Þær hlutu m.a. einkunnina 8,5 fyrir brokk sem var fyllilega verðskuldað, mikið fjaðurmagn og svif.
Í öðru sæti varð Randi Holaker á Þyt frá Skáney með 7,33 í einkunn og í því þriðja Haukur Bjarnason á Ísari frá Skáney. Þau hjón gerðu því góða ferð norður um heiðar úr Borgarfirðinum.
Það var lið Þúfna sem stóð uppi sem stigahæsta lið kvöldsins og hafa því sigrað liðaplattan á öllum þremur keppniskvöldum ársins í deildinni.
| Fjórgangur V1 | |||
| Opinn flokkur – Meistaraflokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Mette Mannseth | Skálmöld frá Þúfum | 7,43 |
| 2 | Randi Holaker | Þytur frá Skáney | 7,03 |
| 3 | Barbara Wenzl | Krókur frá Bæ | 6,97 |
| 4 | Bergrún Ingólfsdóttir | Þórbjörn frá Tvennu | 6,83 |
| 5 | Haukur Bjarnason | Ísar frá Skáney | 6,77 |
| 6 | Þórdís Inga Pálsdóttir | Njörður frá Flugumýri II | 6,70 |
| 7-8 | Vera Evi Schneiderchen | Bragur frá Steinnesi | 6,63 |
| 7-8 | Viktoría Eik Elvarsdóttir | Gjöf frá Sjávarborg | 6,63 |
| 9-11 | Ástríður Magnúsdóttir | Þinur frá Enni | 6,60 |
| 9-11 | Þórarinn Eymundsson | Hnjúkur frá Saurbæ | 6,60 |
| 9-11 | Bjarni Jónasson | Úlfhildur frá Strönd | 6,60 |
| 12 | Ylfa Guðrún Svafarsdóttir | Prins frá Skúfslæk | 6,57 |
| 13 | Brynja Kristinsdóttir | Lýsir frá Breiðstöðum | 6,47 |
| 14-15 | Fanney Dögg Indriðadóttir | Trygglind frá Grafarkoti | 6,33 |
| 14-15 | Jóhann Magnússon | Embla frá Þóreyjarnúpi | 6,33 |
| 16 | Sina Scholz | Nói frá Saurbæ | 6,30 |
| 17-18 | Elvar Logi Friðriksson | Vígablesi frá Djúpadal | 6,23 |
| 17-18 | Þorsteinn Björnsson | Ævar frá Hólum | 6,23 |
| 19 | Elvar Einarsson | Muni frá Syðra-Skörðugili | 6,17 |
| 20 | Fanndís Viðarsdóttir | Glóð frá Hólakoti | 6,13 |
| 21 | Magnús Bragi Magnússon | Aðalsteinn frá Íbishóli | 6,10 |
| 22 | Hannes Brynjar Sigurgeirson | Bragi frá Þingnesi | 6,07 |
| 23 | Guðmar Freyr Magnússon | Sigursteinn frá Íbishóli | 5,80 |
| 24 | Agnar Þór Magnússon | Grímur frá Garðshorni á Þelamörk | 5,53 |
| B úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 6 | Þórdís Inga Pálsdóttir | Njörður frá Flugumýri II | 7,07 |
| 7 | Vera Evi Schneiderchen | Bragur frá Steinnesi | 7,00 |
| 8 | Viktoría Eik Elvarsdóttir | Gjöf frá Sjávarborg | 6,90 |
| 9 | Ástríður Magnúsdóttir | Þinur frá Enni | 6,77 |
| 10 | Þórarinn Eymundsson | Hnjúkur frá Saurbæ | 6,72 |
| 11 | Bjarni Jónasson | Úlfhildur frá Strönd | 6,53 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Mette Mannseth | Skálmöld frá Þúfum | 7,67 |
| 2 | Randi Holaker | Þytur frá Skáney | 7,33 |
| 3 | Haukur Bjarnason | Ísar frá Skáney | 6,83 |
| 4-5 | Bergrún Ingólfsdóttir | Þórbjörn frá Tvennu | 6,67 |
| 4-5 | Barbara Wenzl | Krókur frá Bæ | 6,67 |
| 6 | Þórdís Inga Pálsdóttir | Njörður frá Flugumýri II | 0,00 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH