Ræktendur styrkja landsliðið
Íslenskir hrossabændur eru duglegir að styðja við bakið á landsliðinu okkar í hestaíþróttum og er landsliðsnefnd LH afar þakklát þeim hjálpsömu höndum sem samstarfsaðilar okkar leggja til við að senda okkar lið á mót erlendis, t.a.m. HM nú í sumar.
Ræktendur þessara glæsigripa gáfu landsliðsnefnd folatoll og fjórir tollar eru enn til sölu:
- Arður frá Brautarholti
- Bikar frá Syðri-Reykjum – tollur til sölu
- Spuni frá Vesturkoti
- Stáli frá Kjarri
- Sær frá Bakkakoti
- Þytur frá Neðra-Seli – tollur til sölu
- Hrannar frá Flugumýri
- Hrímnir frá Ósi – tollur til sölu
- Glitnir frá Eikarbrekku
- Hrynur frá Hrísdal – tollur til sölu
- Konsert frá Korpu
Með kaupum á þessu tollum er kaupandinn að styrkja landslið Íslands sem halda mun utan á HM2013 í Berlín í byrjun ágúst.
Landsliðsnefnd LH þakkar ræktendum einstakan stuðning við liðið.
LH