Er nauðsynlegt að loka reiðhöllum hestamannafélaga?
Reiðhallir eru nauðsynlegar til þjálfunar hér er yfirlitsmynd af reiðhöllinni á Flúðum
Fyrr í þessari viku barst tilkynning þess efnis að hestamannafélög skyldu loka sínum reiðhöllum í kjölfarið á hertum reglum um samkomubann þar sem mælst var til að allar íþróttahallir yrðu lokaðar og þ.a.l. reiðhallir.
Ef hestamannafélög vilja halda sínum reiðhöllum opnum þarf að sækja um það sérstaka undanþágu. Í kjölfarið mynduðust umræður á veraldarvefnum um það hvað væri réttast að gera.
Reiðhallir eru ekki notaðar á sama hátt og aðrar íþróttahallir. Í reiðhöllum er fólk eingöngu á sínum hesti en ekki að nota sama búnað og aðrir eins og tíðkast til dæmis í líkamsræktarstöðum. Það er þó nauðsynlegt að allir hugi vel að því að þrífa sig og spritta og halda a.mk. 2 metra fjarlægð frá öðru fólki.
Það væri forvitnilegt að vita hvort að forsvarsmenn hestamennskunnar hefðu kynnt sóttvarnalækni fyrir sérstæðu hestamennskunnar í ljósi þess hveru auðvelt er að halda fjarlægðartakmörkum. En hvað finnst hestamönnum í landinu um lokun reiðhalla?
Í tilkynningu frá Sóttvarnalækni segir:
Lokun samkomustaða og starfsemi vegna sérstakrar smithættu
Sundlaugum, líkamsræktarstöðvum, skemmtistöðum, spilasölum, spilakössum og söfnum skal lokað meðan á þessum takmörkunum stendur.
Starfsemi og þjónusta sem krefst mikillar nálægðar milli fólks eða skapar hættu á of mikilli nálægð er óheimil. Þar undir fellur allt íþróttastarf og einnig allar hárgreiðslustofur, snyrtistofur, nuddstofur og önnur sambærileg starfsemi. Þetta á einnig við um íþróttastarf þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér, s.s. skíðalyftu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH