FT nýtir tæknina til endurmenntunar

  • 26. apríl 2020
  • Fréttir

Félag tamninga hefur nýtt sér tæknina til að bjóða skuldlausum félögum upp á endurmenntun og hefur Mette Mannseth haldið sýnikennslu tvo sunnudaga  í apríl. Fyrsta sýnikennslan fór fram þann 5.apríl og sú seinni í dag sunnudaginn 26.apríl.

Frábærar viðtökur

Eiðfaxi hafði samband við Súsönnu Sand formann Félags tamningamanna og spurði hana út í þessa nýju nálgun. Hvernig kom það til að þið fóruð af stað með endurmenntun í gegnum netið. „Við höfðum undirbúið og auglýst endurmenntun FT sem við urðum því miður að aflýsa. Við höfðum nokkrum sinnum áður streymt beint frá fundum sem voru samtal dómara og keppandi enda mikilvægt að tala sama tungumál. Þegar við höfðum svo þurft að fresta endurmenntun kom upp hugmynd að í stað þess að fresta til næsta árs að framkvæma þetta með hjálp tækninnar. Fyrsta sýnikennslan tókst frábærlega, Mette var með sýnikennslu þar sem hún kom fram með tvo hesta, spjallaði við þátttakendur og svaraði spurningum. Með þessu ná miklu fleiri að taka á þátt þar sem maður þarf ekki að fara að heiman til þess að fylgjast með. Viðtökurnar eru frábærar sem er mikil hvatning til okkar að gera meira.“

Það er greinilegt að FT eins og fleiri hafa nýtt sér þessa erfiðu tíma til þess að taka eitt skref fram á við við nýtingu tækninnar en telur Súsanna að framtíðin í miðlun efnis sé í meira magni í gegnum tæknina? „Já ekki spurning, auðveld leið til að hafa endurmenntun oftar yfir árið og ná þannig sambandi við fleiri félagsmenn.“ Súsanna heldur áfram og talar um mikilvægi endurmenntunar. „Það er mikilvægt að endurmennta sig reglulega til að eignast nýjan eldmóð,  áhuga og hugmyndir í sínu starfi. Einnig er mikilvægt að það sé samnefnari í því hvað felst í tamningu og þjálfun og þá er gæði í reiðkennslu forsenda framfara, þó auðvitað að það sé alltaf blæbrigðamunur, þannig mun okkur fara fram í þekkingu og reiðmennsku. Í framhaldinu munum við hafa reglulega endurmenntun á síðunni okkar og kaupa til þess fræðslu af okkar besta fagfólki. Hugmyndin er að hafa efnið frítt fyrir skuldlausa félagsmenn.“ Eiðfaxi þakkar Súsönnu fyrir samtalið og óskar henni og FT til hamingju með þessa nýju nálgun.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link