,,Reiðvegir viðkvæmir á mörkum vors og vetrar“
Þau eru mörg verkin sem unnin eru af hestamönnum í sjálfboðavinnu og byggist í raun mest allt félagsstarf hestamanna á því fólki sem er tilbúið að leggja mikað á sig fyrir sitt félag. Víða um land er nú unnið að því að koma reiðvegum í gott stand fyrir sumarið.
Einar Hermundsson bóndi í Egilsstaðakoti í Flóa hefur eytt miklum stundum í sjálfboðaliðastarf fyrir Hestamannafélagið Sleipni á Selfossi við lagningu nýrra reiðvega og við viðhald þeirra eldri. Blaðamaður Eiðfaxa var á ferðinni í gær og mætti Einari á traktor sínum. Hann vildi koma þeim skilaboðum til hestafólks að nú væri sá tími sem þyrfti að vinna í reiðvegum og biðlaði til hestamanna að meðan að klaki væri að fara úr jörðu væru reiðvegirnir viðkvæmir og fólk þyrfti því að taka tillit til þess við útreiðar.
Einar er einn af mörgum sjálfboðaliðum hestamennskunnar sem er okkur sem hana stunda svo mikilvægur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH