Landssýning kynbótahrossa í beinu streymi

  • 29. maí 2020
  • Fréttir

Frá Ræktunardegi Eiðfaxa Mynd: Gunnar Freyr

Fréttatilkynning frá Horses of Iceland

Áttatíu hæst dæmdu kynbótahross landsins ásamt stóðhestum með afkvæmaverðlaun verða sýnd í beinu streymi frá Gaddstaðaflötum við Hellu 27. júní.

 

  • https://www.horsesoficeland.is/community/events/national-presentation-of-breeding-horses/1197
  • Landssýning kynbótahrossa verður haldin á Gaddstaðaflötum við Hellu 27. júní og verður beint streymi frá viðburðinum.
  • Þátttökurétt eiga tíu hæst dæmdu kynbótahross vorsins, alls 80, í öllum flokkum, auk stóðhesta með afkvæmaverðlaun.
  • Hestaáhugafólk um víða veröld getur horft á streymið heima í stofu og hlustað á lýsingar á íslensku, ensku eða þýsku.
  • Hægt er að fylgjast með stöðunni hjá efstu hrossunum á forsíðu WorldFengs

 

Félag hrossabænda, Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, Horses of Iceland og Rangárbakkar, þjóðaleikvang íslenska hestsins blása til Landssýningar kynbótahrossa á Gaddstaðaflötum við Hellu, laugardaginn 27. Júní, og verður beint streymi frá viðburðinum. Þátttökurétt í sýningunni eiga tíu hæst dæmdu kynbótahross vorsins í öllum flokkum hryssna og stóðhesta, alls 80 bestu hross landsins. Hrossin verða kynnt ítarlega og verðlaunuð á grunni dóma vorsins. Hestaáhugafólk um víða veröld getur horft á streymið heima í stofu og hlustað á lýsingar á íslensku, ensku eða þýsku. Hæst dæmdu hross sýningavorsins 2020 munu lýsa upp tölvu- og sjónvarpsskjái heimsbyggðarinnar!

Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda, segir: „Það er mikilvægt fyrir hrossaræktendur að geta kynnt þá gripi sem hafa verið í tamningu og þjálfun og búið að leggja mikla vinnu í og stefnt var með á Landsmót.“ Landsmóti hestamanna 2020 hefur verið frestað um tvö ár vegna COVID-19 faraldursins, en hæst dæmdu kynbótahross landsins eru ávallt sýnd á Landsmóti, sem haldið er annað hvert ár.

Á Landssýningu kynbótahrossa verða einnig afkvæmasýningar stóðhesta, en þeir stóðhestar sem eiga rétt á fyrstu- og heiðursverðlaunum fyrir afkvæmi geta komið fram og verða verðlaunaðir. Allir þeir verðlaunagripir sem veittir eru á Landsmótum í einstaklingssýningum og fyrir afkvæmahesta verða veittir við þetta tilefni.

Þorvaldur Kristjánsson, ráðunautur í hrossarækt, segir: „í ljósi aðstæðna og niðurfellingu Landsmóts er mikilvægt að veita ræktendum og hesteigendum vettvang til að stefna að og kynna sína ræktun. Þarna verða efstu hross vorsins í hverjum flokki heiðruð og afkvæmahestar kynntir og verðlaunaðir – þetta er afar gott framtak. Það er nauðsynlegt að við sameinumst öll um þennan dag íslenska hestinum og íslenskri hrossarækt til heiðurs og framdráttar; sýna heiminum að Ísland, upprunaland íslenska hestsins, er sannarleg uppspretta gæða í hrossavali.“

Vonast er til þess að hægt verði að fylgjast með á staðnum, en það mun taka mið af þeim samkomutakmörkunum sem verða þegar að viðburðinum kemur. Nánari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur.

Jelena Ohm, verkefnastjóri Horses of Iceland, segir: „Beint streymi frá viðburðinum er stórt tækifæri fyrir okkur til að ná til miklu stærri markhópa en þeirra sem hefðu mætt á staðinn í eigin persónu. Þannig getum við jafnvel vakið athygli iðkenda hestaíþrótta á öðrum hrossakynjum og sýnt fram á gæði í íslenskri hrossarækt og íslenskum hestaíþróttum.“

Um Horses of Iceland

Tilgangur markaðsverkefnisins Horses of Iceland er að byggja upp orðspor íslenska hestsins um heim allan til að leggja grunn að aukinni verðmætasköpun og útbreiðslu hestsins á heimsvísu.

Íslandsstofa sér um framkvæmd verkefnisins og starfar með verkefnastjórn sem skipuð er fulltrúum úr hestasamfélaginu, Félagi hrossabænda (FHB), Landssambandi hestamannafélaga (LH), Félagi tamningamanna (FT), auk útflutningsaðila og fulltrúa frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Mennta- og menningarmálaráðuneyti og Samtökum ferðaþjónustunnar.

Vefsíða: www.horsesoficeland.is
Samfélagsmiðlar:
Facebook, Instagram, Twitter, Pinterest, Tumblr

Nánari upplýsingar veitir Jelena Ohm, verkefnastjóri Horses of Iceland [email protected].

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link