Umsóknarfrestur í Hólaskóla til 5. júní
Næstkomandi föstudag, 5. júní, rennur út umsóknarfrestur í BS-nám í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum í Hjaltadal.
Meginmarkmið BS-námsins er að veita nemendum fræðilega og hagnýta þekkingu og verklega færni í tamningum, þjálfun, reiðmennsku og reiðkennslu. Námið er fjölbreytt að viðfangi og aðferðum þar sem bókleg og verkleg kennsla er samþætt. Kennslan byggir á fyrirlestrum, lestri fagefnis, notkun myndbanda og fjölbreyttri verkefnavinnu nemenda. Mikil áhersla er lögð á verklega þjálfun á formi einkakennslu, hópkennslu og sýnikennslu. Nemandinn tekur þátt í sýningum og keppni og fjölbreyttri æfingakennslu. Viðamikið lokaverkefni er á þriðja námsári sem þjálfar nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum, að afla þekkingar, ásamt úrvinnslu og framsetningu gagna.
Nánari upplýsingar um BS-nám í reiðmennsku og reiðkennslu má finna hér á vef Hólaskóla.
Styttu haustið með EiðfaxaTV