WR Gæðingamót Geysis – framlengdur skráningarfrestur
Framlengdur skráningarfrestur til miðnættis í kvöld 10.júní
Ákveðið hefur verið að framlengja skráningarfrest til miðnættis í kvöld miðvikudagskvöld 10.júní vegna tæknilegra örðuleika í gærkveldi og er skráning nú í fullum gangi á WR Gæðingamót Geysis sem haldið verður á Rangárbökkum við Hellu dagana 12-14.júní.
Mótið er opið öllum og er fyrsta gæðingamótið sem telur inní heimslista(World ranking) í gæðingakeppni.
Keppt verður í A- og B- flokki gæðinga bæði opinn flokkur og áhugamannaflokkur, A- og B- flokkur ungmenna, unglingaflokkur, barnaflokkur og pollaflokkur.
Skráningu lýkur í kvöld miðvikudagskvöld 10.júní kl 23:59. Öll skráning fer fram á sportfengur.com og Geysir er aðildarfélga sem heldur viðburðinn.
Þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk velja A- eða B- flokkur gæðingflokkur 2.
Komi upp vandamál við skráingu er hægt að hafa samband í síma 8637130 áður en skráningu lýkur.
Öll afskráning fer í gegnum síma 8637130.
Náist ekki þátttaka hefur mótanefnd heimild til að sameina eða fella niður flokka.
Mótinu mun svo vera streymt á Alendis.is
Styttu haustið með EiðfaxaTV