Eiðfaxi Vor til áskrifenda í næstu viku
Nú er í prentun næsta tímarit Eiðfaxa er heitir Eiðfaxi Vor og er það stútfullt af efni og er tilvalið fyrir hestamanninn að taka eintak með sér í ferðalagið. Tímaritið fer í dreifingu til áskrifenda Eiðfaxa í næstu viku.
Eiðfaxi Vor er örlítið seinna á ferðinni en upprunalegar áætlunir gerðu ráð fyrir en ástandið í heiminum undanfarnar vikur og mánuði settu strik í reikninginn hjá Eiðfaxa eins og öðrum en nú er brautin bein og allt komið á fullt að nýju.
Á meðal efnistaka í Eiðfaxa Vor má nefna.
Sextíu ár eru liðin frá stofnun Hestamannafélagsins Trausta og er ágrip af sögu félagsins að finna í Eiðfaxa Vor.
Stórbrotna ferðasögu Fanneyjar Hilmarsdóttur til Eyjaálfu þar sem íslenskir hestar þykja framandi innan um kengúrur og köngulær.
Hálf öld er liðinn frá Landsmótinu 1970 á Skógarhólum en það Landsmót er minnistætt fyrir margra hluta sakir og er atburðinum gerð góð skil í Eiðfaxa Vor.
Sigurður Sigurðarson er sigursælasti knapi Landsmóta og sá eini sem unnið hefur allar þrjár stóru greinarnar A-flokk, B-flokk og tölt. Í tímaritinu segir hann frá þessum sigrum og sögunum á bak við hrossin sem skiluðu honum sigri.
Þá er fjallað um þær fjölmörgu mótaraðir vetursins sem fram fara víða um land.
Þetta ásamt ýmsu fleiru má finna í næsta tímariti Eiðfaxa Vertu áskrifandi að Eiðfaxa og styddu við umfjöllun um íslenska hestinn og öllu því sem honum fylgir með því að smella hér.
Styttu haustið með EiðfaxaTV