Ný lið

  • 25. september 2018
  • Fréttir
Áhugamannadeild Spretts 2019

 

Á árlegu Metamóti Spretts sem haldið var í byrjun september var dregið út um þau lið sem komast í Áhugamannadeild Spretts 2019.

 

Í ár voru þrjú sæti laus og um þau sæti sóttu fjögur lið.  Þau lið sem dregin voru út og hljóta keppnisrétt fyrir 2019 eru:

Eldhestar – Lið Idu Thorberg og félaga

Landvit – lið Viggó Sigursteinssonar og félaga

Hraunhamar – lið Bjarna Sigurðssonar og félaga

Næsta lið var svo lið AHL holding.

 

Equsana deildin 2019 hefst svo pompi og prakt fimmtudaginn 7 febrúar.  Við hvetjum alla til að taka keppnisdaga deildarinnar strax frá enda spennandi mótaröð að fylgjast með.

 

Dagsetningarnar eru:

Fimmtudagur 7 febrúar – Fjórgangur

Fimmtudagur 21 febrúar – Fimmgangur

Fimmtudagur 7 mars : Slaktaumatölt og flugskeið gegnum höllina

Fimmtudagur 21 mars : Tölt – lokamótið

 

Kynning liðanna sem keppa í deildinni hefst svo í nóvember en töluverðar breytingar hafa orðið á liðskipan liðanna. 

 

Við bjóðum ný lið velkomin í Equsana deildina 2019 og við sjáumst í 7 febrúar 2019.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link