Meistarar í gæðingatölti krýndir í fyrsta sinn hér á landi

  • 19. júlí 2020
  • Fréttir

Elísabet Vaka stóð efst í flokki 17 ára og yngri í gæðingatölti

Gæðingatölt er ný keppnisgrein sem hefur verið í þróun en í henni ríða knapar hægt tölt og yfirferðartölt og eru dæmdir á skala gæðingadómara. Að þessu sinni var keppt í tveimur flokkum annars vegar 18 ára og eldri og hins vegar 17 ára og yngri.

Í flokki 17 ára og yngri var það Elísabet Vaka Guðmundsdóttir sem lenti í efsta sæti á Heiðrúnu frá Bakkakoti og hlaut hún í einkunn 8,65.

Í flokki 18 ára og eldri var það Hekla Katharína Kristinsdóttir sem stóð efst en hún sat Lilju frá Kvistum og hlaut í einkunn 8,70.

A-úrslit Gæðingatölt 17 ára og yngri

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Elísabet Vaka Guðmundsdóttir / Heiðrún frá Bakkakoti 8,65
2 Kristín Eir Hauksdóttir Holake / Sóló frá Skáney 8,62
3 Sigurður Baldur Ríkharðsson / Trymbill frá Traðarlandi 8,53
4 Herdís Björg Jóhannsdóttir / Snillingur frá Sólheimum 8,46
5 Magnús Máni Magnússon / Stelpa frá Skáney 8,45
6 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir / Abba frá Minni-Reykjum 8,36
7 Elísabet Líf Sigvaldadóttir / Sumarliði frá Hárlaugsstöðum 2 7,89
8 Ágúst Einar Ragnarsson / Herdís frá Hafnarfirði 7,59
9 Haukur Orri  Bergmann Heiðarsson / Tenor frá Grundarfirði 7,51
10 Sigurbjörg Helga Vignisdóttir / Bjarmi frá Brekkukoti 7,27

A-úrslit Gæðingatölt 18 ára og eldri

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Hekla Katharína Kristinsdóttir / Lilja frá Kvistum 8,70
2 Sylvía Sigurbjörnsdóttir / Rós frá Breiðholti í Flóa 8,64
3 Maiju Maaria Varis / Dagný frá Stekkholti 3 8,49
4 Sylvía Sól Magnúsdóttir / Reina frá Hestabrekku 8,43
5 Stefanía Sigfúsdóttir / Framtíð frá Flugumýri II 8,35
6 Vilfríður Sæþórsdóttir / List frá Múla 8,34

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link