Fimmtu skeiðleikar Skeiðfélagsins
Konráð Valur Sveinsson, stigahæsti knapi skeiðleika árið 2020. Mynd: Aðsend
Þann 26. ágúst síðastliðinn voru haldnir fimmtu og síðustu skeiðleikar Skeiðfélagsins árið 2020. Fín skráning var á mótið og frábærir tímar og sprettir sáust.
Einnig kom í ljós stigahæsti knapi skeiðleikanna, en hver knapi safnar stigum á skeiðleikum sumarsins og stóð Konráð Valur Sveinsson uppi sem stigahæsti knapi 2020 og hlaut í verðlaun 100.000 kr gjafabréf í hestavöruversluninni Baldvin og Þorvaldur. Innilega til hamingju með það!
Við í Skeiðfélaginu þökkum kærlega fyrir sumarið og óskum knöpum og hestum til hamingju með flott skeiðsumar og sjáumst hress og kát á Skeiðleikum næsta sumar.
Skeiðfélagið vill þakka hestavöruverslunni Baldvin og Þorvaldur kærlega fyrir samstarfið í sumar og fyrir frábæra verðlaunagripi sem gefnir voru, en þeir voru allir í boði þeirra.
Hér koma svo niðurstöður fimmtu skeiðleika Skeiðfélagsins:
Skeið 250m
1 Sigursteinn Sumarliðason – Krókus frá Dalbæ 22,35
2 Árni Björn Pálsson – Seiður frá Hlíðarbergi 22,82
3 Páll Bragi Hólmarsson – Heiða frá Austurkoti 24,44
4 Bjarni Bjarnason – Glotti frá Þóroddsstöðum 24,57
5 Bjarni Bjarnason – Jarl frá Þóroddsstöðum 24,99
6 Páll Bragi Hólmarsson – Vörður frá Hafnarfirði 26,43
Skeið 150m
1 Daníel Gunnarsson – Eining frá Einhamri 14,40
2 Ingibergur Árnason – Flótti frá Meiri-Tungu 1 14,78
3 Erling Ó. Sigurðsson – Hnikar frá Ytra-Dalsgerði 14,84
4 Hans Þór Hilmarsson – Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði 15,26
5 Sigurbjörn Bárðarson – Hvanndal frá Oddhóli 15,44
6 Bjarni Bjarnason – Þröm frá Þóroddsstöðum 15,44
Flugskeið 100m
1 Konráð Valur Sveinsson – Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 7,55
2 Jóhann Magnússon – Fröken frá Bessastöðum 7,77
3 Konráð Valur Sveinsson – Tangó frá LitlaGarði 7,81
4 Sigursteinn Sumarliðason – Krókus frá Dalbæ 7,83
5 Ingibergur Árnason – Sólveig frá Kirkjubæ 7,83
6 Jakob Svavar Sigurðsson – Jarl frá Kílhrauni 7,85
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH