HOI- Ljósmyndasamkeppni í tilefni af Degi íslenska hestsins

  • 1. september 2020
  • Fréttir

Ljósmyndari: Christiane Slawik.

 Til þess að fagna Alþjóðlegum degi íslenska hestsins í ár, ákvað Horses of Iceland að efna til ljósmyndasamkeppni í stað þess að bjóða heim í hesthús.

 

  • Deildu þinni uppáhaldsmynd af íslenski hesturinn í fallegri náttúru á samfélagsmiðlum. Þú getur halað henni upp hér.
  • Þú gætir unnið Kalda Gore-Tex® Infinum® Windstopper® ullarjakka frá 66°Norður með herra- eða dömusniðiog hlýtt ullarteppi með fallegri mynd af íslenskum hesti frá hönnunarmerkinu islensk.is!
  • Þú mátt senda inn eins margar myndir og þú vilt en það er aðeins er hægt að kjósa eina mynd.
  • Hægt er að taka þátt frá 1.–11. september.
  • Deildu myndunum með vinum og fjölskyldu á samfélagsmiðlum til að fá sem flest atkvæði. Gleymdu ekki #horsesoficeland myllumerkinu.
  • Sigurvegarinn verður tilkynntur á Alþjóðlegum degi íslenska hestsins, 12. september.

 

Hjálpaðu okkur við að halda upp á Alþjóðlegan dag íslenska hestsins þann 12. september. Í ljósi aðstæðna ákvað Horses of Iceland (HOI) að efna til ljósmyndasamkeppni í ár, í stað þess að bjóða heim í hesthús.

 

Verkefnastjóri HOI, Jelena Ohm, segir: „Við vorum að vonast til þess að hægt væri að fagna degi íslenska hestsins eins og vanalega með því að halda opin hús, fara í skemmtilega hópreiðtúra, o.fl. núna í september. En því miður er staðan ennþá þannig að það er ekki gott að hvetja fólk til að koma saman í stærri hópum. Þess vegna höldum við þessu rafrænu í ár og fyllum samfélagsmiðla með fallegum myndum af íslenskum hestum; ekki bara sem hesteigendur hafa tekið, heldur líka ferðamenn á ferðalögum sínum um Ísland. Fögnum á netinu og verum örugg!“

 

Deildu þinni uppáhaldsmynd, gamalli eða nýrri, á samfélagsmiðlum. Hún á að fanga töfrandi augnablik þar sem íslenski hesturinn er aðalstjarnan í fallegri náttúru. Þú getur halað myndinni upp hér. Þú gætir unnið Kalda Gore-Tex® Infinum® Windstopper® ullarjakka frá 66°Norður með herra- eða dömusniði og hlýtt ullarteppi með fallegri mynd af íslenskum hesti frá íslenska hönnunarmerkinu islensk.is!

 

Þú mátt senda inn eins margar myndir og þú vilt. Fylgjendur kjósa síðan sína uppáhaldsmynd – aðeins er hægt að kjósa eina mynd. Sú mynd sem fær flest atkvæði vinnur. Til þess að tryggja sér sem flest atkvæði hvetjum við alla þátttakendur til að deila myndunum með vinum og fjölskyldu á samfélagsmiðlum og fá þau til að kjósa. Gleymdu ekki #horsesoficeland myllumerkinu.

Hægt er að taka þátt frá 1.–11. september og síðan verður sigurvegarinn tilkynntur á Alþjóðlegum degi íslenska hestsins, 12. september.

 

Um Horses of Iceland

Tilgangur markaðsverkefnisins Horses of Iceland er að byggja upp orðspor íslenska hestsins um heim allan til að leggja grunn að aukinni verðmætasköpun og útbreiðslu hestsins á heimsvísu. Íslandsstofa sér um framkvæmd verkefnisins og starfar með verkefnastjórn sem skipuð er fulltrúum úr hestasamfélaginu, Félagi hrossabænda (FHB), Landssambandi hestamannafélaga (LH), Félagi tamningamanna (FT), auk útflutningsaðila og fulltrúa frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Mennta- og menningarmálaráðuneyti og Samtökum ferðaþjónustunnar.

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link