Stóðhestaval á Fákshólum

  • 19. nóvember 2010
  • Fréttir
Stóðhestaval á Fákshólum

Starfsemi á hrossaræktarbúunum er víðast hvar komið í eðlilegt horf eftir erfitt sumar sem lék fjölda hrossa grátt í hestapestinni.
Útsendari Eiðfaxa brá sér að Fákshólum í Ásahreppi í Rangárþingi Ytra.
Býlið er nýbýli út  úr stórbýlinu Ási og hefur til umráða um 200 hektara lands.
Þau Jóhanna Sigríður Njálsdóttir og Ellert Vigfússon hafa á síðastliðnum þremur árum byggt upp glæsilega aðstöðu til hestahalds auk þess að byggja veglegt íbúðarhús fyrir sig. Hesthúsið er afar rúmgott með 40 eins hesta stíum. Fjögur vegleg gerði er við hesthúsið. Hlaða og geimslupláss er afar rúmgott. Reiðhöllin er um 1100 fm. og komin er vandaður tvöfaldur hringvöllur.
  Tamningafólk á búinu eru þau Birna Káradóttir og Sigurður Óli Kristinsson sem hafa í 17 ár stundað tamningar saman. Þau eru þekkt öllu hesaáhugafólki og margsinnis verið í fremstu röð á hestaþingum. Birna keppti m.a.á HM ‘99. Dóttir þeirra Guðmunda Ellen er einnig farin að sópa að sér verðlaunum á keppnisvöllunum og varð íslandsmeistari s.l. sumar.
    Að venju er litið á ungu stóðhestana fyrst en einir 10 stóðhestar eru í tamningu og þjálfun.
Birna leiðir fram Feykir frá Háholti 4v. en hann er undan Andvara frá Ey og Eflingu frá Háholti í Gnúpverjahreppi.  Birna er fædd og uppalin á þeim bæ, barnabarn Steiþórs Gestssonar á Hæli. Eigendur eru Birna og Fákshólar ehf. Afar athygliverður foli sem fer vel af stað í tamningu.
   Þá er leiddur fram grár foli á fjórða vetur, Bylur frá Háholti undan Krumma frá Blesastöðum og Kviku frá Eigilstaðakoti. Birna var einmitt afar sigursæl á Kviku á mörgum mótum. Fróðlegt verður að fylgjast með þeim gráa sem er í eigu tamningafólksins.
    Ellert á litföróttan skjóttan, á fjórða, sem er fæddur honum, athygliverðan fola. Krapi undan Gjafari frá Eyrarbakka og Rán frá Sandhólaferju, temst hann vel. Þessi stóðhestur getur ekki gefið einlit hross nema þá litförótt.
   Víðir frá Heiði 4v. er einn af þessum athygliverðu folum en faðir er Týr frá Skeiðháholti, móðirin er Fura frá Heiði. Það er Halldór Melsted sem á hann
Fleyri athygliverða mætti nefna s.s. Þóroddsonin þótta frá Hvammi og  1v. Klettssoninn, Gýg frá Hólabaki en hann er sammæðra Glað frá Hólabaki sem tvöfaldur heimsmeistari.
     Það verður víða gaman að koma í vetur og fylgjast með vaxandi stjörnum í stóðhestaflórunni. S.S.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link