Frábær árangur í kappreiðaskeiði á árinu
Sigursteinn og Krókus frá Dalbæ eiga besta tíma ársins mynd:Louisa Hackl/Meistaradeild
Keppni í kappreiðaskeiði blómstraði á árinu en mikill uppgangur hefur verið í skeiðgreinum undanfarin ár og margir fljótir hestar taka nú þátt á flestum þeim mótum þar sem boðið er upp á skeiðgreinar.
Við tökum nú fyrir bestu tíma ársins í 250 metra og 150 metras skeiði.
Sigursteinn Sumarliðason og Krókus frá Dalbæ eiga besta tíma ársins í 250 metra skeiði þegar þeir félagar fóru vegalengdina á 21,23 sekúndum á Metamóti Spretts.
Sigurbjörn Bárðarson og Vökull frá Tunguhálsi II eiga besta tíma ársins í 150 metra skeiði sem hann náði á Metamóti Spretts þar sem þeir fóru á 14,06 sekúndum.
Hér fyrir neðan eru bestu tímar ársins en hvert keppnispar birtist einu sinni á listanum og eingöngu best tími.
Birt með fyrirvara um að öll mót hafi borist.
250 metra skeið
| # | Knapi | Hross | Tími | Mót |
| 1 | Sigursteinn Sumarliðason | Krókus frá Dalbæ | 21,23 | Metamót 2020 |
| 2 | Sigurbjörn Bárðarson | Vökull frá Tunguhálsi II | 21,36 | Metamót 2020 |
| 3 | Konráð Valur Sveinsson | Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II | 21,57 | Skeiðleikar 1 |
| 4 | Daníel Gunnarsson | Eining frá Einhamri 2 | 21,75 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 5 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | IRangá frá Torfunesi | 22,02 | Metamót 2020 |
| 6 | Finnur Jóhannesson | Tinna Svört frá Glæsibæ | 22,07 | Skeiðleikar 3 |
| 7 | Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson | Seyður frá Gýgjarhóli | 22,25 | Metamót 2020 |
| 8 | Jóhann Magnússon | Fröken frá Bessastöðum | 22,30 | Metamót 2020 |
| 9 | Árni Björn Pálsson | Seiður frá Hlíðarbergi | 22,82 | Skeiðleikar 5 |
| 10 | Ingibergur Árnason | Sólveig frá Kirkjubæ | 22,90 | Metamót 2020 |
| 11 | Bjarni Bjarnason | Glotti frá Þóroddsstöðum | 23,02 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 12 | Hinrik Bragason | Hind frá Efri-Mýrum | 23,21 | Skeiðleikar 1 |
| 13 | Viðar Ingólfsson | Ópall frá Miðási | 23,42 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 14 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Andri frá Lynghaga | 23,65 | Metamót 2020 |
| 15 | Bjarni Jónasson | Randver frá Þóroddsstöðum | 23,68 | Kvöldmót Skagfirðings 3 |
| 16 | Teitur Árnason | Bandvöttur frá Miklabæ | 23,74 | Skeiðleikar 3 |
| 17 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Andri frá Lynghaga | 23,87 | Skeiðleikar 4 |
| 18 | Páll Bragi Hólmarsson | Vörður frá Hafnarfirði | 24,08 | Metamót 2020 |
| 19 | Ólafur Örn Þórðarson | Lækur frá Skák | 24,14 | Skeiðleikar 1 |
| 20 | Sveinbjörn Hjörleifsson | Drífa Drottning frá Dalvík | 24,26 | Hólamótið UMSS og Skagfirðings |
| 21 | Bjarni Bjarnason | Jarl frá Þóroddsstöðum | 24,28 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 22 | Hanna Rún Ingibergsdóttir | Birta frá Suður-Nýjabæ | 24,43 | Skeiðleikar 4 |
| 23 | Páll Bragi Hólmarsson | Heiða frá Austurkoti | 24,44 | Skeiðleikar 5 |
| 24 | Hermann Árnason | Árdís frá Stóru-Heiði | 24,45 | Skeiðleikar 2 |
| 25 | Rakel Sigurhansdóttir | Dögun frá Mosfellsbæ | 24,46 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 26 | Svavar Örn Hreiðarsson | Surtsey frá Fornusöndum | 24,49 | Punktamót 1 |
| 27 | Svavar Örn Hreiðarsson | IHnoppa frá Árbakka | 24,81 | Kvöldmót Skagfirðings 3 |
150 metra skeið
| # | Knapi | Hross | Tími | |
| 1 | Sigurbjörn Bárðarson | Vökull frá Tunguhálsi II | 14,06 | Metamót 2020 |
| 2 | Árni Björn Pálsson | Seiður frá Hlíðarbergi | 14,11 | Metamót 2020 |
| 3 | Konráð Valur Sveinsson | Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II | 14,17 | Skeiðmót Meistaradeildar í hestaíþróttum |
| 4 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Sjóður frá Þóreyjarnúpi | 14,19 | Metamót 2020 |
| 5 | Sigurður Vignir Matthíasson | Léttir frá Eiríksstöðum | 14,22 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 6 | Daníel Gunnarsson | Eining frá Einhamri 2 | 14,40 | Skeiðleikar 5 |
| 7 | Ingibergur Árnason | Flótti frá Meiri-Tungu 1 | 14,42 | Metamót 2020 |
| 8 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Blikka frá Þóroddsstöðum | 14,49 | Metamót 2020 |
| 9 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Sigurrós frá Gauksmýri | 14,52 | Metamót 2020 |
| 10 | Hans Þór Hilmarsson | Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði | 14,54 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 11 | Árni Björn Pálsson | Ögri frá Horni I | 14,59 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 12 | Sigurbjörn Bárðarson | Hvanndal frá Oddhóli | 14,63 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 13 | Erling Ó. Sigurðsson | IHnikar frá Ytra-Dalsgerði | 14,65 | Metamót 2020 |
| 14 | Bjarni Bjarnason | Þröm frá Þóroddsstöðum | 14,72 | Metamót 2020 |
| 15 | Þórarinn Eymundsson | Gullbrá frá Lóni | 14,72 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 16 | Jóhann Magnússon | Óskastjarna frá Fitjum | 14,84 | Skeiðleikar 1 |
| 17 | Sigurður Sigurðarson | Drift frá Hafsteinsstöðum | 14,92 | Skeiðmót Meistaradeildar í hestaíþróttum |
| 18 | Guðmar Freyr Magnússon | Brimar frá Varmadal | 14,94 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 19 | Reynir Örn Pálmason | Skemill frá Dalvík | 14,94 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 20 | Sigurbjörn Bárðarson | IHálfdán frá Oddhóli | 15,00 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 21 | Davíð Jónsson | Glóra frá Skógskoti | 15,05 | Skeiðmót Meistaradeildar í hestaíþróttum |
| 22 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir | Sveppi frá Staðartungu | 15,11 | Skeiðmót Meistaradeildar í hestaíþróttum |
| 23 | Guðmundur Björgvinsson | Stolt frá Laugavöllum | 15,11 | Skeiðmót Meistaradeildar í hestaíþróttum |
| 24 | Þórarinn Ragnarsson | Funi frá Hofi | 15,16 | Skeiðleikar 1 |
| 25 | Þorgeir Ólafsson | ISólbrá frá Borgarnesi | 15,17 | Skeiðleikar 1 |
| 26 | Jóhann Kristinn Ragnarsson | Þórvör frá Lækjarbotnum | 15,20 | Skeiðmót Meistaradeildar í hestaíþróttum |
| 27 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir | Óskastjarna frá Fitjum | 15,25 | Metamót 2020 |
| 28 | Védís Huld Sigurðardóttir | Hrafnhetta frá Hvannstóði | 15,27 | Skeiðleikar 1 |
| 29 | Fredrica Fagerlund | Snær frá Keldudal | 15,30 | Skeiðmót Meistaradeildar í hestaíþróttum |
| 30 | Trausti Óskarsson | Skúta frá Skák | 15,31 | Reykjavíkurmeistaramót |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH