Sjö nýir knapar í U-21 árs landsliðinu
Benjamín varð heimsmeistari í gæðingaskeiði ungmenna árið 2019 og á hann þátttökurétt á HM2021 þar sem hann keppir í fullorðinsflokki
Landssamband hestamannafélaga kynnir nýjan landsliðshóp U21-landsliðsins fyrir árið 2021.
Hekla Katharína Kristinsdóttir landsliðsþjálfari hefur gert breytingar á U21-landsliðshópi LH, inn í hópinn koma sjö nýir knapar, það eru: Hekla Rán Hannesdóttir, Hulda María Sveinbjörnsdóttir, Kristján Árni Birgisson, Signý Sól Snorradóttir, Sigrún Högna Tómasdóttir, Sigurður Baldur Ríkharðsson og Svanhildur Guðbrandsdóttir.
í yfirlýsingu frá LH kemur fram að Úrtakið hafi verið stórt og mikið af frambærilegum unglingum og ungmennum sem sýna mikinn metnað og góða frammistöðu. Gaman verður að halda áfram að fylgjast með þeim sem eru að banka á dyrnar hjá U21 árs hópnum en komust ekki inn að þessu sinni.
Fréttatilkynning LH um U-21 landsliðshóp má nálgast með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH