bókin HESTAR inniheldur málverk eftir íslenskan hest
,,Íslenski hesturinn hefur fylgt þjóðinni allt frá landnámi; hrakist á útigangi, troðið veglaust hraun og snjóþungar heiðar, borið eigendur sína og allar eigur þeirra yfir jökulfljót og þeyst landshluta á milli í öllum veðrum. Í þessari bók skoðum við og veltum upp allskonar hliðum á því hvernig hesturinn hefur mótast af landinu og vosbúðinni og orðið þessi nagli sem hann er. Við segjum frá allskonar merkilegum hestum úr þróunarsögunni sem og úr goðsögum, þjóðsögum, draugasögum og kjaftasögum svo eitthvað sé nefnt. Það eru líka margar nútímasögur og núlifandi hestar í bókinni þó svo að keppnishestum og kynbótadómum sé reyndar ekki gert hátt undir höfði í þessari bók.“Þetta segir Rán Flygenring annar af höfundum bókarinnar HESTA sem kom nú á haustdögum þegar hún var innt eftir því um hvað bókin fjallaði.
Bókin HESTAR hefur hlotið góða dóma, það er forlagið Angústúra sem gefur bókina út en sama teymi gaf út systurbókina FUGLAR fyrir þremur árum. Tveir höfundar eru að verkinu þau Rán og Hjörleifur Hjartarson. En hvernig kviknaði hugmyndin að bókinni? ,,Það vildi þannig til að Hjörleifur skrifaði verk sem sýnt var í Hörpu og markaði upphaf Hestadaga í Reykjavík 2017. Þar stigu á svið Hilmir Snær og hljómsveitirnar Brother Grass og Hundur í óskilum, sungu hestalög og sögðu sögur af hestum. Þetta var svo ekkert sýnt neitt meira, en þarna varð til vísir að bókinni.
Markmiðið okkar var síðan að gera bók um hesta sem næði ekki bara til hestamanna heldur líka til þeirra sem hafa almennt engan áhuga á hrossum né hestamennsku. Svona eins og fuglabókin kveikti áhuga margra á fuglum. Hjörleifur kallar þessa bók stundum neftóbaksfræði fyrir byrjendur.
Svo má bæta því við að eftir því sem við best vitum er HESTAR fyrsta og eina útgefna bókin sem inniheldur málverk eftir íslenskan hest! Verkið hlaut titilinn Óreiða á striga og er eftir ólíkindatólið Skugga-Svein frá Hafnarfirði.“
Eiðfaxi þakkar Rán fyrir spjallið og óskar henni og öllum þeim sem að bókaútgáfunni koma til hamingju með verkið. Bókin er fáanlega í bókabúðum um allt land, í Hagkaupum og hjá útgefanda.
Rán Flygenring og Hjörleifur Hjartarson höfundar bókarinnar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH