Dalvíski netagerðarmaðurinn
Fjórði þátturinn af hlaðvarpsþættinum Á Kaffistofunni fór í loftið í síðustu viku en þættirnir eru samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.
Gestur þáttarins er Anton Páll Níelsson sem er flestum hestamönnum vel kunnugur. Hann er fæddur og uppalinn á Dalvík þar sem hann sleit barnsskónum og byrjaði sína hestamennsku en foreldrar hans voru ekki í hestum. Hann fór til náms við Háskólann á Hólum þar sem hann lærði til reiðkennara og er einn vinsælasti reiðkennarinn í Íslandshestaheiminum. Hann hefur skoðanir á málunum og er óhræddur við að láta þær í ljós.
Í þættinum eru einnig þeir Hjörvar Ágústsson og að þessu sinni bætist við Arnar Bjarki Sigurðsson og ræða þessi þrír snillingar ýmislegt tengt hestamennskunni.
Fegurðin við hlaðvarpsþætti er sú að það má hlusta á þá hvar og hvenæar sem er. Núna er einmitt góður tími til þess að hlust á síðasta þátt en það má gera með því að smella á fréttina hér fyrir neðan eða fara inn á Spotify og hlusta þar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH