Steffi og Sjóli alþjóðlegur knapi og hestur ársins hjá Isibless

  • 2. janúar 2021
  • Fréttir

Steffi Svendsen og Sjóli frá Teland. Mynd: Neddens

Sigurvegarar BlessAwards, hinna árlegu verðlauna netmiðilsins Isibless, voru kunngjörðir nýlega. Ríflega tvö þúsund lesendur Isibless greiddu alls 19.175 atkvæði í kosningum í hinum ýmsu flokkum og voru annars vegar valdir bestu knapar og hestar ársins í Þýskalandi og hins vegar á alþjóðavettvangi.

Titillinn Besti knapi ársins utan Þýskalands féll í skaut hinnar dönsku Steffi Svendsen og besti hestur ársins utan Þýskalands var hestur hennar, Sjóli frá Teland, en þau unnu m.a. fjórgangskeppnina á WorldTölt og brons í sömu keppnisgrein á þýska meistaramótinu. Skammt á hæla Steffi í kosningunni um alþjóðlegan knapa ársins kom Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og þau hross sem fylgdu á eftir Sjóla voru Abel frá Tyrevoldsdal og Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu.


Ragnhildur Haraldsdóttir hafði sigur á Jóhönnu Margréti Snorradóttir í flokknum Bjartasta von ársins (Shooting Star of the Year) á alþjóðavísu og Glódís Rún Sigurðardóttir var valin Ungknapi ársins og hafði þar betur gegn Nathalie Schmid frá Ítalíu og Esmée Versteeg frá Hollandi. Norðmaðurinn Nils-Christian Larsen fékk einnig sérstök verðlaun (Style Icon of the Year) fyrir framlag sitt til aukinnar vakningar í tísku og snyrtimennsku knapa.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link