Föstudagur aftur…

  • 29. janúar 2021
  • Fréttir

Í gær var fyrsta mótið í Meistaradeildinni, fjórgangur og ég líkt og flestir hestamenn var rosalega spenntur að fylgjast með mörgum af okkar flinkustu knöpum etja kappi. Ég var alveg spenntur þó það væri ekkert verið að leggja á skeið.

En það er önnur saga.

Ég hef alltaf haldið því fram að sigrarnir vinnist ekki bara á vellinum þegar á hólminn er komið heldur er það vinnan og æfingarnar sem búið er að leggja inn til þess að eiga það skilið að vinna.

Í fjórgangnum í gær sannaðist þetta fannst mér rækilega. Það voru nokkrir knapar búnir að liggja yfir því að undirbúa sig og hestinn sinn vel fyrir fjórganginn, og þá sérstaklega sá maður það á einum knapa sem að lokum stóð uppi sem sigurvegari.

Það var einhvern veginn bara öruggt, hún var vel undirbúin, hesturinn skildi verkefnið, sterkur og þjáll. Það þurfti enga flugeldasýningu til en Ragga landaði þessum sigri af yfirvegun og mjög verðskuldað eftir jafna sýningu.

Ég veit fyrir víst að hún hefur legið yfir þessu verkefni, og stefnt á sigur í fjórgangi Meistaradeildarinnar lengi. Og uppskar eins og sáð var.

Við verðum góð í því sem við æfum, og æfingin skapar meistarann. Við verðum góð í öllu sem við eyðum tímanum okkar í og það þarf virkilega yfirlegu til þess að ná árangri.

Það þarf að færa fórnir, það kostar að stefna á toppinn og mikil fjárfesting undir.

Vel gert.

Annað sem ég rak augun, ja og eyrun í var viðtölin við knapa eftir forkeppni. Mér finnst alltaf gaman að spá aðeins í þeim og reyna að komast inn í huga viðmælandans og lesa í það sem sagt er.

Mér finnst pínu sniðugt þegar knapar sem hafa sýnt hesta nánast frá því áður en hjólið var fundið upp þykjast ekkert botna í dómurum sem dæma þá. Ég held að svona reynslumiklir knapar viti innst inni ef ein gangtegund virkaði ekki nógu vel í sýningunni, eða hvað?

En það var gaman að horfa á keppnina og fylgjast með því hvað knapar eru að leggja áherslu á í þjálfun sinni og sýningum, og ég fylgist alltaf sérlega vel með því hvernig stemningin, ábendingartónninn og líkamstjáning knapanna verður. Mér finnst það mjög áhugavert, og á þessu ”leveli” sem meistaradeildin er þegar kemur að kunnáttu og reynslu knapanna þá er það oft þetta sem skilur á milli.

Þegar reiðmennskan er vel undirbúin, vel æft, hesturinn skilur verkefnið þá verður sýningin einföld og létt. Það sem lítur út fyrir að vera létt er það líka oftast einfaldlega vegna þess að það er vel æft, engar tilviljanir.

Og það sem er létt kemur líka yfirleitt alltaf fallega út.

Ég vill leggja til við alla knapa og þjálfara að leggjast yfir það hvaða stemning hentar knapa og hesti, hvaða tónn virkar best í ábendingunum fyrir mismunandi verkefni og æfa sig að ”stilla tóninn”.

 

Góða helgi allir hestamenn.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link