Meistaradeild ungmenna – lið Pálmatrés
Hákon Dan Ólafsson, liðsstjóri liðs Pálmatrés.
Næsta lið sem kynnt er til leiks í Meistaradeild ungmenna og Dýralæknar Sandhólaferju er lið Pálmatrés. Liðsstjóri er Hákon Dan Ólafsson. Hákon vinnur á Hólaborg við tamningar og þjálfun og stefnir á að keppa í öllum greinum.
Ylfa Guðrún Svafarsdóttir er nemandi á öðru ári í Háskólanum á Hólum. Hún stefnir á að keppa í öllum greinum.
Þorvaldur Logi Einarsson er nemandi við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hann stefnir á að keppa í öllum greinum.
Katla Sif Snorradóttir útskrifast í vor af viðskipta- og hagfræðibraut á afrekssviði frá Flensborgarskólanum. Hún stundar tamningar og þjálfun samhliða skóla og stefnir á að keppa í öllum greinum.

Meistardeild ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju hefst föstudaginn 5. febrúar í Fákaseli.

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH