Sáttmáli hestamanna og annarra vegfarenda
Stjórn LH hefur ekki farið varhluta af þeirri umræðu sem hefur átt sér stað á samfélagasmiðlum og í fjölmiðlum um umferðaröryggi hestamanna á reiðvegum.
Í samstarfi við Samgöngustofu og Horses of Iceland hefur LH undanfarna mánuði unnið að verkefni um umferðaröryggismál hestamanna. Snýr sú vinna m.a. að útgáfu fræðslumyndbands í teiknimyndaformi um viðbörgð hestsins við áreiti annarrar umferðar þar sem meginþráðurinn er að upplýsa fólk um að hesturinn er flóttadýr og áhersla er á gagnkvæma tillitsemi og virðingu milli ólíkra útivistarhópa. Samhliða útgáfu myndbandsins er unnið að gerð sáttmála milli hestafólks og annarra vegfarenda í samstarfi við fulltrúa útivistarhópa og annarar umferðar. Stefnt er að sameiginlegri undirritun sáttmálans á næstu dögum og í framhaldi taki þessir fulltrúar höndum saman og upplýsi sína félagsmenn um ólíkar þarfir mismundandi hópa, nauðsyn þess að við sýnum hvort öðru virðingu og að við notum aðeins þá stíga og svæði sem okkar íþrótt er ætlað.
Þá mun LH halda áfram að beita sér fyrir því að koma sjónarmiðum hestamanna á framfæri auk þess að freista þess að sækja aukið fjármagn til reiðvega og öryggismála okkar hestamanna.
Það er von stjórnar að með víðtæku samtali, fræðslu og gagnkvæmri virðingu takist að okkur öllum að njóta útiveru í sátt og samlyndi við hvort annað.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH