„Hvet alla hestaunnendur til að heimsækja íslandsmótið á Hólum“
Árni Björn Pálsson og Stormur frá Herríðarhóli í töltkeppni á LM2016 ljósmynd/Eiðfaxi
Íslandsmót í hestaíþróttum fullorðinna og ungmenna fer fram á Hólum í Hjaltadal dagana 30.júní – 4.júlí. Mótið er með breyttu sniði vegna þess að nú gilda stöðulistar inn á mótið. Hestamannfélögin á Norðvestur- og Norðurlandi munu halda mótið í sameiningu, mótsstjóri verður Sigurður Heiðar Birgisson en blaðamaður Eiðfaxa sló á þráðinn til hans og forvitnaðist meira um undirbúning og annað tengt mótinu.
„Undirbúningurinn gengur vel hérna fyrir norðan. Það er margt að huga að þegar kemur að íslandsmóti og er verið að leggja lokahönd á undirbúning. Helstu framkvæmdinar sem við höfum farið í er með hringvöllinn á Hólum, hann var heflaður niður og sett nýtt efni svo að völlurinn verður í toppstandi þegar kemur að mótinu.“ Segir Sigurður aðspurður um undirbúning og hvort farið hafi verið í framkvæmdir fyrir mótið. En hverju mega keppendur og aðrir mótsgestir búast við þegar þeir heimsækja Íslandsmót?
Ætlum að taka vel á móti gestum
„Nú hafa vissulega orðið breytingar á því hvernig íslandsmóti er háttað. Einungis 30 efstu hestar í fullorðinsflokki og 20 efstu hestar í ungmennaflokki komast inná mót svo að þá má búast við gríðarlega sterkum hestum á mótinu, það verður gaman að sjá hvernig íslandsmót kemur fram í þessum búning. Mótsvæðið verður allavega í hátíðarbúning og munu skagfirðingar tjalda öllu til, við höfum í kringum 250 stíur í fjórum hesthúsum á Hólum sem keppendur geta pantað, einnig munu vera svæði þar sem keppendur geta girt af fyrir sín hross á grasgefnu landi. Fjölbreytt úrval af veitingum verður á svæðinu og nóg af mat og drykk fyrir keppendur og mótsgesti. Gamla skólahöllinn verður tekin undir veitingasölu og einnig mun verða lifandi tónlist svo að gestir geti einnig skemmt sér frameftir. Við hvetjum keppendur til að kynna sér skráningar fyrir hesthúspláss inn á skagfirdingur.is Nóg af almennum tjaldstæðum verður í boði á svæðinu gjaldfrjáls og einnig mun fara í sölu tjaldstæði með rafmagni nú í vikunni ef fólk kýs þess, allar upplýsingar um það finnst inn á skagfirdingur.is“
Skagfirðingar eru ekki þekktir fyrir annað en gestrisni og ekki er við öðru að búast en léttleiki og skemmtun verði í fyrirrúmi, er ekki öruggt að þar verði engin breyting á? „Hér í Skagafirðinum er ávallt stemming og sér í lagi þegar kemur að hestamannamótum. Að sjálfsögðu munum við taka á móti gestum og keppendum með bros á vör og höfum gaman líkt og okkur er einum lagið. Það verður skagfirskur söngur, gleði og gæðingar allsráðandi í Hjaltadalnum.“ Segir Sigurður Heiðar og bætir við að lokum.
„Við hvetjum að sjálfsögðu alla hestaunnendur til að drífa sig norður á Hóla í Hjaltadal og njóta góðra hesta með okkur, hér er gullið tækifæri til að sjá alla helstu gæðinga landsins í hverjum flokki spreyta sig ásamt okkar fremstu knöpum.“

Sigurður Heiðar Birgisson við útskrift frá Hólaskól fyrir nokkrum árum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH