Kynningarfundur vegna umræðu um sameiningu

  • 15. júní 2021
  • Fréttir

Opinn kynningarfundur Hestamannafélagsins Trausta verður haldinn í félagsheimilinu á Borg, þriðjudaginn 15. júní klukkan 20.
Kynnt verður samantekt stjórnar félagsins um mögulega sameiningu hmf Trausta við hmf Smára og hmf Loga.
Aðdragandinn er sá að á aðalfundi Trausta 2020 var samþykkt að saminingarnefnd yrði stofnuð með fulltrúum frá hestamannafélögum Smára og Loga. Hlutverk nefndarinnar var að fara yfir og meta kosti og galla sameiningar þessara þriggja félaga. Starfi nefndarinnar er nú lokið og liggur fyrir greinargerð sem stjórnum félagann hafa nú verið kynntar.
Í nóvember 2020 lagði nefndin fram við stjórnir hestamannafélaganna að kosið yrði um það á næsta aðalfundi hvort leggja ætti félögin niður og nýtt félag yrði stofnað í kjölfarið sem myndi starf á sama svæði og hin þrjú hafa gert fram að þessu.
Stjórnir allra þriggja félaganna samþykktu það.
Nú er komið að því, kynningarfundur verður 15. júní fyrir félaga Trausta.
Vonumst við sem höfum staðið í þessu að sjá sem flesta.
Látum okkur málin varða, mætum og ræðum málin.

Stjórn Trausta

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link