Toppklassa gæðingar skráðir á Fjórðungsmót – hver sigrar A-flokk?
Trymbill frá Stóra-Ási stóð efstur í A-flokki á FM 2017 knapi: Mette Mannseth. Ljósmynd/Eiðfaxi
Fjórðungsmót Vesturlands fer fram í Borgarnesi 7.-11. Júlí. Venju samkvæmt verður þar keppt í gæðingakeppni og eru margir stórkostlegir gæðingar skráðir til leiks, ljóst er að það verður spennandi að fylgjast með því hvaða hestur og knapi standa uppi sem sigurvegarar í öllum flokkum gæðingakeppninnar að mótinu loknu.
Nýr sigurvegari krýndur
í A-flokki eru ansi margir hestar sem koma til greina sem sigurvegarar. Á síðasta Fjórðungsmóti var það Trymbill frá Stóra-Ási sem fór með sigur af hólmi sýndur af Mette Mannseth. Blaðamaður Eiðfaxa rýndi í þátttökulista með það að markmiði að finna út hverjir væru sigurstranglegastir í ár.
Forkur frá Breiðabólsstað Knapi: Flosi Ólafsson
Forkur haut 8,57 í forkeppni á úrtökumóti Borgfirðings. Er núna 10 vetra gamall en hann skaust fram á sjónarsviðið fyrir fimm árum á Landsmóti árið 2016 þegar hann stóð efstur í fimm vetra flokki. Hefur ekki mikla reynslu í keppni en hefur hæst hlotið 8,80 fyrir hæfileika í kynbótadómi. Flosi þekki hestinn vel hefur þjálfað hann og sýnt alla tíð.
Glúmur frá Dallandi Knapi: Jakob Svavar Sigurðsson
Glúmur kemur inn á mótið með einkunnina 8,67 í forkeppni á úrtökumóti í Skagfirðingi. Líkt og Forkur hefur Glúmur ekki mikla keppnisreynslu en hefur hlotið háan kynbótadóm og er sigurvegari í flokki stóðhesta sjö vetra og eldri á Landsmótið árið 2018, en hann er núna 11.vetra. Hæst hefur hann hlotið 8,90 fyrir hæfileika í kynbótadómi. Jakob Svavar reið Sprota frá Innri-Skeljabrekku til úrslita á síðasta Fjórðungsmóti og varð í 2.sæti hann ætlar sér líklega að gera betur núna.
Goði frá Bjarnarhöfn Knapi: Siguroddur Pétursson
Goði er nú kominn með nýjan knapa en Hans Þór Hilmarsson hefur keppt á honum í gæðingakeppni með ágætis árangri. Hann er 10 vetra gamall og hefur keppnisreynslu umfram Glúm og Fork. Goði hlaut 8,57 í forkeppni á úrtökumóti Snæfellings. Hann hefur hlotið háan kynbótadóm og skartar m.a. einkunninni 10,0 fyrir skeið. Ef Siguroddi tekst að laða fram það besta í Goða geta þeir svo sannarlega gert tilkall til sigurs.
Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli Knapi: Bjarni Jónasson
Harpa Sjöfn er 11.vetra gömul margverðlaunuð hryssa sem hefur gert það gott í íþrótta- og gæðingakeppni auk þess að vera meðal hæst dæmdu hryssa allra tíma. Hún hlaut 8,47 í forkeppni á úrtökumóti Skagfirðings. Hún býr yfir jöfnum og góðum gangtegundum og virðist aldrei klikka, hún getur því á góðum degi farið með sigur af hólmi.
Kalsi frá Þúfum Knapi: Mette Mannseth
Kalsi er 10 vetra gamall geldingur sem hefur mikla keppnisreynslu í hinum ýmsu greinum í íþrótta- og gæðingakeppni auk þess að hafa hlotið háan kynbótadóm. Kalsi hlaut 8,56 á úrtökumóti Skagfirðings. Mette hefur titil að verja í A-flokki gæðinga á FM og mætir því beitt til leiks að vanda.
Korgur frá Garði Knapi: Bjarni Jónasson
Korgur stóð efstur í A-úrslitum á úrtökumóti Skagfirðings hann hlaut 8,66 í forkeppni á sama móti. Líkt og aðrir hestar sem hér hafa verið nefndir hefur Korgur hlotið háan kynbótadóm og gert það gott í íþrótta- og gæðingakeppni.
Nátthrafn frá Varmalæk Knapi: Þórarinn Eymundsson
Nátthrafn er 11.vetra gamall stóðhestur sem kemur inn á mótið með einkunnina 8,57 á úrtökumóti Skagfirðings. Hann hefur hlotið yfir 9,00 fyrir hæfileika í kynbótadómi auk þess að keppa bæði í íþrótta- og gæðingakeppni. Þórarinn Eymundsson situr Nátthrafn.
Roði frá Lyngholti Knapi: Bergrún Ingólfsdóttir
Roði er 11.vetra gamall stóðhestur með 8,92 fyrir hæfileika í kynbótadómi og líkt og Goði frá Bjarnarhöfn hefur hann hlotið 10,0 fyrir skeið. Hann hlaut 8,58 á úrtökumóti Neista. Roði var í A-úrslitum í A-flokki á síðasta Landsmóti þá sýndur af Árni Birni Pálssyni. Bergrún Ingólfsdóttir situr Roða núna og mun að öllum líkindum blanda sér í toppbaráttuna.
Sægrímur frá Bergi Knapi: Viðar Ingólfsson
Sægrímur er yngstur af hestunum á þessum lista 9.vetra gamall, hann er líkt og aðrir á honum með háan kynbótadóm og hefur mætt nokkrum sinnum í keppni og þá aðallega íþróttakeppni. Hann stóð efstur á Hestaþingi Snæfellings þar sem hann hlaut 8,69 í forkeppni og 8,94 í úrslitum. Knapi á honum er Viðar Ingólfsson sem er mikill keppnismaður og vís til alls.
Vegur frá Kagaðarhóli Knapi: Þórarinn Eymundsson
Vegur kemur inn á mótið eftir að hafa verið efstur að lokinni forkeppni á sterku gæðingamóti Skagfirðings þar sem hann hlaut 8,69. Vegur er 11.vetra gamall og orðinn ansi reynslumikill og hefur verið vel sýnilegur í íþróttakeppni. Hann virðist þó vera fjölhæfur enda með 9,03 fyrir hæfileika í kynbótadómi. Þórarinn Eymundsson ætlar sér stóra hluti á þessu móti og þar er Vegur eitt af vopnunum.
Þytur frá Skáney Knapi: Randi Holaker
Það er óhætt að segja að Þytur sé reynsluboltinn í hópi þeirra hesta sem taldir hafa hér verið upp því hann er 16.vetra gamall og með mikla keppnisreynslu. Hann er eins og gott vín verður betri með aldrinum. Hann og knapi hans Randi Holaker gjörþekkjast og þau ætla sér að standa sig á heimavelli. Þytur hlaut 8,59 á úrtökumóti Borgfirðings.
Taka skal fram að upptalning þessi er til gamans gerð og svo sannarlega eru fleiri hestar sem geta farið með sigur af hólmi í A-flokki gæðinga á Fjórðungsmótinu því alls eru skráðir 56 hestar til leiks. Það verður að minnsta kosti spennandi að fylgjast með úr brekkunni í Borgarnesi dagana 7.-11.júlí.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH