Fjölgað í flugskeiði á Fjórðungsmóti
Frá keppni í skeiði á FM2017 Ljósmynd/Eiðfaxi
Vegna fjölda áskoranna hefur mótsnefnd Fjórðungsmóts í Borgarnesi ákveðið að opna fyrir skráningu í 100 metra skeið og eru nú 10 pláss og verður keppendum í þeirri grein því fjölgað úr 20 í 30. Skráning fer fram á Sportfeng þar sem velja þarf Hestamannafélagið Glað sem mótshaldara og þar má finna Fjórðungsmót.
Keppni í þessari grein fer fram laugardagskvöldiðð 10.júlí á hátíðarkvöldvöku mótsins.
Einnig er vert að minnast á að í þessari grein sem og tölti eru peningaverðlaun í boði fyrir sigurvegara og því til mikils að vinna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum