Íslandsmót – Ræðst í kvöld hverjir sigra í kappreiðaskeiði

  • 1. júlí 2021
  • Fréttir

Konráð og Kjarkur fóru hraðast í 250 metra skeiði í fyrri umferð ljósmynd/eiðfaxi

Í gærkvöldi fór fram keppni í fyrstu tveimur sprettum í 250 og 150 metra kappreiðaskeiði. Hvöss sunnanáttin var beint í fangið á keppendum sem orsakaði það að ekki betri tímar náðust. Í kvöld verður keppt í seinni tveimur sprettum og ræðst þá hverjir standa uppi sem Íslandsmeistarar í greininni. Veðurspáin fyrir kvöldið lítur vel út því það spáir 15 stiga hita og vindi að vestan.

Að lokinni fyrri umferð er það Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu sem leiða í 250 metra skeiði á tímanum 22,94 sekúndum.

í 150 metra skeiði fullorðinna er Þórarinn Ragnarsson á Bínu frá Vatnsholti með besta tímann 14,80 og í ungmennaflokki er það Glódís Rún Sigurðardóttir á Blikku frá Þóroddsstöðum sem hraðast fór á 14,94 sekúndum.

 

250 metra skeið

Sæti Keppandi Hross Betri sprettur
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 22,94
2 Benjamín Sandur Ingólfsson Fáfnir frá Efri-Rauðalæk 23,62
3 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 23,76
4 Erlendur Ari Óskarsson Dama frá Hekluflötum 23,86
5 Gústaf Ásgeir Hinriksson Rangá frá Torfunesi 24,11
6 Páll Bragi Hólmarsson Vörður frá Hafnarfirði 24,33
7 Viðar Ingólfsson Ópall frá Miðási 24,76
8 Svavar Örn Hreiðarsson Surtsey frá Fornusöndum 24,93
9-11 Daníel Gunnarsson Eining frá Einhamri 2 0,00
9-11 Ingibergur Árnason Sólveig frá Kirkjubæ 0,00
9-11 Jóhanna Margrét Snorradóttir Andri frá Lynghaga 0,00

150 metra skeið

Sæti Keppandi Hross Betri sprettur
1 Glódís Rún Sigurðardóttir Blikka frá Þóroddsstöðum 14,94 Ungmenni
1 Þórarinn Ragnarsson Bína frá Vatnsholti 14,80
2 Árni Björn Pálsson Seiður frá Hlíðarbergi 14,90
2 Þorvaldur Logi Einarsson Skíma frá Syðra-Langholti 4 16,30 Ungmenni
3 Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir Ylfa frá Miðengi 18,07 Ungmenni
3 Sigurður Vignir Matthíasson Léttir frá Eiríksstöðum 15,07
4 Arnar Máni Sigurjónsson Púki frá Lækjarbotnum 0,00 Ungmenni
4 Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi II 15,12
5 Ívar Örn Guðjónsson Funi frá Hofi 15,32 Ungmenni
6 Ingibergur Árnason Flótti frá Meiri-Tungu 1 15,89
7 Guðlaug Jóna Matthíasdóttir Auðna frá Hlíðarfæti 16,49
8-11 Eyrún Ýr Pálsdóttir Sigurrós frá Gauksmýri 0,00
8-11 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi 0,00
8-11 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði 0,00
8-11 Þórarinn Eymundsson Gullbrá frá Lóni 0,00

150 metra skeið

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link