Árni Björn og Gyða Sveinbjörg eru á toppnum í fimmgangi
Árni Björn og Katla Ljósmynd/Eiðfaxi
Forkeppni í fimmgangi er nú lokið hér á Íslandsmótinu að Hólum í Hjaltadal en alls tóku 49 knapar þátt í þeirri grein í meistara- og ungmennaflokki.
Í meistaraflokki er það Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II sem hafa þónokkuð forskot á keppinauta sína og er einkunn þeirra 7,73. Í öðru sæti er Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri II með 7,50 í einkunn. Ólafur Andri Guðmundsson er í því þriðja á Kolbaki frá Litla-Garði með 7,43. Stutt er á milli í þessari grein og ljóst að það verður hörð keppni um það hver stendur að lokum uppi sem Íslandsmeistari í fimmgangi.
Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir er efst í ungmennaflokki á Vísi frá Helgatúni með einkunnina 6,57 skammt undan er Hafþór Hreiðar Birgisson á Verði frá Vindási með 6,50 í einkunn og í því þriðja er Rósa Kristín Jóhannesdóttir á Greip frá Haukadal 2.
Framundan í kvöld er svo kappreiðaskeið og kemur þá í ljós hver verður Íslandsmeistari í 250 og 150 metra skeiði. Hefst keppni í þeim greinum klukkan 18:30 er að sjálfsögðu í beinni á AlendisTv.
Meistaraflokkur – Fimmgangur
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Árni Björn Pálsson / Katla frá Hemlu II | 7,73 |
| 2 | Eyrún Ýr Pálsdóttir / Hrannar frá Flugumýri II | 7,50 |
| 3 | Ólafur Andri Guðmundsson / Kolbakur frá Litla-Garði | 7,43 |
| 4 | Teitur Árnason / Atlas frá Hjallanesi 1 | 7,40 |
| 5 | Guðmundur Björgvinsson / Sólon frá Þúfum | 7,30 |
| 6 | Gústaf Ásgeir Hinriksson / Brynjar frá Bakkakoti | 7,23 |
| 7 | Mette Mannseth / Kalsi frá Þúfum | 7,20 |
| 8-9 | Bjarni Jónasson / Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli | 7,17 |
| 8-9 | Arnar Bjarki Sigurðarson / Álfaskeggur frá Kjarnholtum I | 7,17 |
| 10 | Hanna Rún Ingibergsdóttir / Dropi frá Kirkjubæ | 7,13 |
| 11-12 | Sara Sigurbjörnsdóttir / Flóki frá Oddhóli | 7,10 |
| 11-12 | Benjamín Sandur Ingólfsson / Smyrill frá V-Stokkseyrarseli | 7,10 |
| 13-14 | Vignir Sigurðsson / Evíta frá Litlu-Brekku | 7,00 |
| 13-14 | Þórarinn Eymundsson / Vegur frá Kagaðarhóli | 7,00 |
| 15 | Valdís Björk Guðmundsdóttir / Fjóla frá Eskiholti II | 6,97 |
| 16 | Atli Guðmundsson / Júní frá Brúnum | 6,90 |
| 17-18 | Haukur Baldvinsson / Sölvi frá Stuðlum | 6,87 |
| 17-18 | Viðar Ingólfsson / Starkar frá Egilsstaðakoti | 6,87 |
| 19-20 | Sigurður Vignir Matthíasson / Slyngur frá Fossi | 6,80 |
| 19-20 | Pétur Örn Sveinsson / Hlekkur frá Saurbæ | 6,80 |
| 21 | Jessica Elisabeth Westlund / Frjór frá Flekkudal | 6,73 |
| 22 | Jóhanna Margrét Snorradóttir / Nútíð frá Flagbjarnarholti | 6,57 |
| 23 | Randi Holaker / Þytur frá Skáney | 6,17 |
| 24-25 | Sigursteinn Sumarliðason / Stanley frá Hlemmiskeiði 3 | 6,10 |
| 24-25 | Snorri Dal / Engill frá Ytri-Bægisá I | 6,10 |
| 26 | Hans Þór Hilmarsson / Penni frá Eystra-Fróðholti | 5,87 |
| 27-29 | Viðar Ingólfsson / Eldur frá Mið-Fossum | 0,00 |
| 27-29 | Eyrún Ýr Pálsdóttir / Roði frá Brúnastöðum 2 | 0,00 |
| 27-29 | Ásmundur Ernir Snorrason / Ás frá Strandarhöfði | 0,00 |
Fimmgangur Ungmennaflokkur
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir / Vísir frá Helgatúni | 6,57 |
| 2 | Hafþór Hreiðar Birgisson / Vörður frá Vindási | 6,50 |
| 3 | Rósa Kristín Jóhannesdóttir / Greipur frá Haukadal 2 | 6,43 |
| 4-5 | Hákon Dan Ólafsson / Júlía frá Syðri-Reykjum | 6,40 |
| 4-5 | Glódís Rún Sigurðardóttir / Kári frá Korpu | 6,40 |
| 6-7 | Katla Sif Snorradóttir / Gimsteinn frá Víðinesi 1 | 6,37 |
| 6-7 | Arnar Máni Sigurjónsson / Blesa frá Húnsstöðum | 6,37 |
| 8 | Þorvaldur Logi Einarsson / Dalvar frá Dalbæ II | 6,20 |
| 9-12 | Egill Már Þórsson / Stormur frá Björgum 4 | 6,03 |
| 9-12 | Thelma Dögg Tómasdóttir / Bósi frá Húsavík | 6,03 |
| 9-12 | Ylfa Guðrún Svafarsdóttir / Straumur frá Hríshóli 1 | 6,03 |
| 9-12 | Sigrún Högna Tómasdóttir / Sirkus frá Torfunesi | 6,03 |
| 13 | Herjólfur Hrafn Stefánsson / Kvistur frá Reykjavöllum | 6,00 |
| 14 | Hafþór Hreiðar Birgisson / Von frá Meðalfelli | 5,97 |
| 15 | Benedikt Ólafsson / Leira-Björk frá Naustum III | 5,93 |
| 16 | Kristófer Darri Sigurðsson / Ás frá Kirkjubæ | 5,83 |
| 17 | Glódís Rún Sigurðardóttir / Rosi frá Berglandi I | 5,60 |
| 18 | Þorvaldur Logi Einarsson / Sóldögg frá Miðfelli 2 | 5,53 |
| 19 | Embla Þórey Elvarsdóttir / Tinni frá Laxdalshofi | 5,27 |
| 20 | Hrund Ásbjörnsdóttir / Sæmundur frá Vesturkoti | 5,20 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH