Gaman saman á Melunum aflýst

  • 26. júlí 2021
  • Fréttir
Vegna hraðvaxandi fjölgunar COVID-19 smita í samfélaginu undanfarna daga og hertra sóttvarna hafa hestamannafélögin Funi og Léttir ákveðið að aflýsa hestamannamótinu Gaman saman, sem vera átti á Melgerðismelum um verslunarmannahelgina.
Þeir sem þegar hafa skráð sig og greitt skráningargjöld eru beðnir um að senda bankaupplýsingar á netfangið [email protected] svo hægt verði að endurgreiða skráningargjöld.
Höldum áfram að virða sóttvarnarreglur en jafnframt að stunda útreiðar og útiveru og hugsanlega verður blásið til samkomu síðar ef aðstæður gefa tilefni til.
Mótanefndir Funa og Léttis

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link