Fimmtán hross hlutu 9,5 fyrir tölt

  • 27. ágúst 2021
  • Fréttir

Nala frá Varmá hlaut 9,5 fyrir tölt, 4.vetra gömul. Janus Halldór sýndi hryssuna, myndin er tekin á Landssýningu kynbótahrossa. Ljósmynd/Gísli Guðjónsson

Alls hlutu fimmtán hross einkunnina 9,5 fyrir tölt í ár hér á landi. Meðalaldur þessara hrossa er 6,46 ár. Af þessum fimmtán hrossum eru fjórir stóðhestar. Sjö þeirra hlutu einkunnina á vorsýningu, þrjú á miðsumarssýningu og fimm á siðsumarssýningu.

Ræktunarbúið að Þjórsárbakka á tvær hryssur í þessum hópi þær Auðlind og Rjúpu  en báðar eru þær útaf gæðingamóðurinni Eldingu frá Hóli. Teitur Árnason sýndi fjögur þessara hrossa áðurnefndar hryssur frá Þjórsárbakka, Vonanda frá Halakoti og Heiður frá Eystra-Fróðholti.

Árni Björn Pálsson er sýnandi að tveimur hrossum sem 9,5 hlutu fyrir tölt en það eru Elva frá Auðsholtshjáleigu og Sólfaxi frá Herríðarhóli.

Listi með þeim hrossum sem hlutu 9,5 fyrir tölt.

Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi
Auðlind Þjórsárbakka Teitur Árnason
Elva Auðsholtshjáleigu Árni Björn Pálsson
Fluga Hrafnagili Helga Una Björnsdóttir
Happadís Strandarhöfði Ásmundur Ernir Snorrason
Heiður Eystra-Fróðholti Teitur Árnason
Heilun Holtabrún Elvar Þormarsson
Nala Varmá Janus Halldór Eiríksson
Rjúpa Þjórsárbakka Teitur Árnason
Sandra Líf Álfhólum Sara Ástþórsdóttir
Sólfaxi Herríðarhóli Árni Björn Pálsson
Staka Hólum Mette Camilla Moe Mannseth
Toppa Gröf Flosi Ólafsson
Vonandi Halakoti Teitur Árnason
Þrá Prestsbæ Þórarinn Eymundsson
Özur Ásmundarstöðum 3 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link