Tvær hryssur hlutu 9,5 fyrir brokk á árinu
Kamma frá Sauðárkróki á Landssýningu.
Tvær hryssur hlutu einkunnina 9,5 fyrir brokk hér á landi í ár en báðar eru þær 6.vetra gamlar. Þetta eru þær Happadís frá Strandarhöfði og Kamma frá Sauðárkróki.
Kamma hlaut einkunnina á vorsýningu á Hólum í Hjaltadal sýnd af Þórarni Eymundssyni. Ræktandi er Sauðárkróks-Hestar en eigendur Svala Guðmundsdóttir og Guðmundur Ólafsson. Kamma er undan heiðursverðlaunahestinum Aðli frá Nýjábæ og Kómetu frá Sauðárkróki en hún er undan Kolfinni frá Kjarnholtum og Hervu frá Sauðárkróki.
Happa dís hlaut einkunnina á vorsýningu á Gaddstaðaflötum sýnd af Ásmundi Erni Snorrasyni en ræktandi og eigandi Happadísar er Stella Sólveig Pálmarsdóttir. Happadís er undan heiðursverðlaunahestinum Loka frá Selfossi og Gyðju frá Þorsteinsstöðum sem er undan Kveik frá Miðsitju og Ösp frá Djúpadal.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH